forlag með sál

2-6 ára

Airplane kisses

Ingibjörg Vilbergsdóttir og Nancy Myer

Drawings: Jean Antoine Posocco

Airplane Kisses is a warm and moving story about maintaining family bonds in our global society. It is a story about a boy named Daniel who lives in Iceland and his Grandma who lives in America.

Meira
1.490 kr.

Arngrímur apaskott og fiðlan

Kristín Arngrímsdóttir

Arngrímur apaskott gengur fram á Sólrúnu sem er að spila á fiðlu. Hann heillast af seiðandi tónunum og ætlar sér að ná fiðlunni - hvað sem það kostar!

Meira
1.690 kr.

Arngrímur apaskott og hrafninn

Kristín Arngrímsdóttir

Skemmtileg klippimyndabók sem heillar yngri kynslóðir en líka þá fullorðnu. Meira
1.990 kr.

Auður og gamla tréð

Eva Rún Þorgeirsdóttir

og Stella Sigurgeirsdóttir
Auður er fimm ára stúlka með fjörugt ímyndunarafl. Garðurinn á bak við húsið hennar hefur alltaf verið svo ósköp venjulegur. Dag einn birtist þar nýr vinur sem sýnir henni hvaða spennandi og skemmtilegu veröld garðurinn hefur að geyma. Hér er ævintýrið um Auði og jógaæfingar fyrir börn fléttað saman með skemmtilegum hætti.
Meira
1.999 kr.

Bína bálreiða

Ásthildur Bj. Snorradóttir

Myndskreytingar: Bjarni Þór Bjarnason

Höfundurinn er talmeinafræðingur hjá Talþjálfun Reykjavíkur. Hún hefur langa reynslu af því að styrkja boðskiptafærni og efla málþroska hjá ungum börnum. Bókin Bína bálreiða byggir á þeirri reynslu.

Meira
1.750 kr.
 

Bína bálreiða - lítil

Ásthildur Bj. Snorradóttir

Myndir: Bjarni Þór Bjarnason

Lítil útgáfa af hinni vinsælu Bínu bálreiðu, hentug í skó, vasa, ferðalagið eða bara beint í lítin lófa.

Meira
590 kr.

Bína fer í leikskóla

Ásthildur Bj. Snorradóttir

Myndskreytingar: Bjarni Þór Bjarnason

Höfundurinn er talmeinafræðingur hjá Talþjálfun Reykjavíkur. Hún hefur langa reynslu af því að styrkja boðskiptafærni og efla málþroska hjá ungum börnum. Bókin Bína bálreiða byggir á þeirri reynslu.

Meira
1.750 kr.

Bína fer í leikskóla - lítil

Ásthildur Bj. Snorradóttir

Myndir: Bjarni Þór Bjarnason

Hin vinsæla Bína í litlu og léttu bókarbroti. Bína kvíðir fyrir að byrja í leikskólanum. Hún er ekki viss um að mamma komi að sækja hana og hún veit ekki alltaf hvernig hún á að hegða sér innan um hina krakkana.

Meira
590 kr.

Bína lærir orð, hljóð og stafi

Ásthildur Bj. Snorradóttir

Myndskreytingar: Bjarni Þór Bjarnason

Bína er að byrja í skólahóp í leikskólanum. Hún lærir að ríma, leika sér með orð og uppgötvar hljóð bókstafanna. Hún lærir einnig að einbeita sér. þessi bók er nauðsynleg fyrir öll börn sem eru að undirbúa sig fyrir listina að læra að lesa.

Meira
1.750 kr.

Bína lærir orð, hljóð og stafi - lítil

Ásthildur Bj. Snorradóttir

Myndir: Bjarni Þór Bjarnason

Lítil og handhæg útgáfa af þessari vinsælu Bínubók. Bína er að byrja í skólahóp í leikskólanum. Hún lærir að ríma, leika sér með orð og uppgötvar hljóð bókstafanna.

Meira
590 kr.
 

Bína - Myndalottó

Ásthildur Bj. Snorradóttir

Myndalottó Bínu er íslenskt spil fyrir 2-6 ára börn. Spilið er eftir Ásthildi Bj. Snorradóttur, sem er talmeinafræðingur hjá Talþjálfun Reykjavíkur. Hún er einnig höfundur barnabókanna um Bínu. Meira
2.200 kr.

Dagur í lífi Lúlú

Florence Helga Thibault

Lúlú finnst gaman að vera til. Dagurinn hjá Lúlú er fullur af litlum ævintýrum sem auðga ímyndunarafl ungra barna. Florence Helga er alin upp í Frakklandi en heldur tryggð við Ísland, land móður sinnar, með því að senda ungum íslendingum fallegar og litríkar Lúlúsögur.

Meira
790 kr.

Einstök mamma

Höfundur: Bryndís Guðmundsdóttir

Myndskreyting: Margrét E. Laxness

Systkinin Ásdís og Óli eiga mömmu sem er öðruvísi en aðrar mömmur. Hún er samt besta mamma í heimi og minnir okkur á að engir tveir eru eins og hver manneskja er einstök. Einstök mamma hlaut barnabókaverðlaun Menntaráðs Reykjavíkurborgar 2008.

Meira
1.750 kr.

Flugvélakossar

Ingibjörg Vilbergsdóttir og Nancy Myer

Teikningar: Jean Antoine Posocco

Skemmtileg og hjartnæm saga um væntumþyggju og vináttu sem berst heimsálfa á milli. Daníel býr á Íslandi og amma hans í Ameríku. Þeim finnst gaman að hittast en erfitt að kveðjast.

Meira
990 kr.

Grautardallssaga

Myndskreyting: Sigurborg Stefánsdóttir

Grautardallssaga fjallar um karl og kerlingu í koti sínu sem áttu einn son. Þau voru bláfátæk og áttu ekkert sér til bjargar nema grautardall sem aldrei þraut grautinn í. Þó að kotbúar væru leiðir á grautnum sá karlinn að dallurinn var öldungis ómissandi því hann var það eina sem hélt í þeim lífinu. Klassískt ævintýri um karlsson og kóngsdóttur.

Meira
790 kr.
 

Grýla á fæðingardeildinni

Bryndís Víglundsdóttir

Myndskreyting: Kristín Arngrímsdóttir

Leppalúða bregður heldur betur í brún þegar hann sér að Grýla er komin með ógnarstóran maga. Kannski á hún von á fjórtánda jólasveininum? Leppalúði og jólasveinarnir ákveða að fara með hana til borgarinnar á spítala.

Meira
990 kr.

Gusugangur í grasinu

Erla Sigurðardóttir

Það er glaðasólskin, hagamýsnar hoppa og skoppa um allt og fuglarnir syngja. Skyndilega gefur gamla garðslangan sig og þá verður heldur betur gusugangur í grasinu. Meira
990 kr.

Hænur eru hermikrákur

Bruce McMillan

Myndskreyting: Gunnella

Íslensk þýðing: Sigurður A. Magnússon

Sagan fjallar um nokkrar konur í litlu íslensku sjávarplássi sem vantar egg til matseldar og ákveða að fá sér nokkrar hænur. Þegar hænurnar hætta að verpa finna þær leið til að leysa vandann. Þetta er bók fyrir þriggja til sjö ára börn en allir aldursflokkar geta notið hinna glæsilegu málverka Gunellu sem prýða bókina.

Meira
1.490 kr.

Jólasveinarnir


Fyndin og fjörleg bók um óborganleg ævintýri jólasveinanna þrettán. Hefur lengi verið uppseld en kemur hér í nýrri útgáfu handa nýrri kynslóð barna. Meira
1.690 kr.

Jólasveinarnir í Hamrahlíð og Jólabaðið

Bryndís Víglundsdóttir

Myndskreyting: Kristín Arngrímsdóttir

Í bókinni eru tvær jólasögur, annars vegar Jólasveinarnir í Hamrahlíð og hins vegar Jólabaðið. Báðar sögurnar fjalla um heimsókn jólasveinanna til byggða og nú sem endranær er mikið fjör þar sem þeir bræður eru.

Meira
990 kr.
 

Jólasögur

Bryndís Víglundsdóttir

Bryndís skrifar sniðugar sögur um jólasveina: Jólabaðið, Jólasveinarnir í Hamrahlíð og Grýla á fæðingadeildinni. Og nú hefur hún lesið sögurnar inn á hljómdisk. Er nokkuð notalegra en að hlusta á skemmtilegar og jólalegar sögur á aðventunni? Meira
990 kr.

Lúlú heldur jól

Florence Helga Thibault

Dagurinn hjá Lúlú er fullur af litlum ævintýrum sem auðga ímyndunarafl ungra barna. Í þessari fallega myndskreyttu jólabók hlakkar Lúlú mikið til. Það er gott að hafa nóg að gera því þá verður biðin ekki eins löng ...

Meira
790 kr.

Lúlú kann að telja

Florence Helga Thibault

Lúlú finnst gaman að telja. Bækurnar um kisuna Lúlú eru einstaklega fallegar myndabækur fyrir yngstu börnin. Í þessari bók eru tölurnar myndskreyttar, frá einum og upp í tíu. Heill heimur opnast þegar Lúlú lærir tölurnar.

Meira
790 kr.

Lúlú lærir litina

Florence Helga Thibault

Lúlú finnst gaman að lita. Dagurinn hjá Lúlú er fullur af litlum ævintýrum sem auðga ímyndunarafl ungra barna. Florence Helga er alin upp í Frakklandi en heldur tryggð við Ísland, land móður sinnar, með því að senda ungum Íslendingum fallegar og litríkar Lúlúsögur.

Meira
790 kr.

Mary Poppins

Höfundur: P.L. Travers

Myndskreyting: Mary Shepard

Íslensk þýðing: Hallur Hermannsson

Hefur þú orðið þess heiðurs aðnjótandi að kynnast Mary Poppins? Þeir sem það hafa gert vita að hún er engin meðalkona og þeir vita líka að hún hefur lag á því að gera heiminn okkar skemmtilegri - og örlítið skringilegri en ella.

Meira
790 kr.
 

Óli í Brattagili

Höfundur: Jóhanna Á. Steingrímsdóttir

Myndskreyting: Jean Posocco

Óli litli er fullur ævintýralöngunar og langar upp á fjall og renna sér niður á sleðanum sínum. Það er mikið hættuspil svo pabbi hans og mamma banna honum það, en Óli laumast þrátt fyrir það og lendir í töluverðum háska. Þetta er þriðja bók Jóhönnu Á. Steingrímsdóttur þar sem saga og ljóð vinna saman við að segja litlum börnum skemmtilegt ævintýri.

Meira
920 kr.

Rikka and her magic ring

Hendrikka Waage

This book takes the reader through all that makes Iceland such a wonderful and exhilarating place for children to visit and if it creates a desire for them to visit this country in later life, it will have fulfilled its purpose and made them more aware of the different cultures and customs that makes this world such an exciting place.  Meira
2.390 kr.

Rikka og töfrahringurinn á Indlandi

Hendrikka Waage

Rikka á töfrahring og með hans hjálp ferðast hún um Indland með vini sínum. Þar lenda þau í allskyns óvæntum ævintýrum og ferðast um spennandi staði. Meira
2.390 kr.

Rikka og töfrahringurinn á Íslandi

Hendrikka Waage

Rikka á töfrahring og með hans hjálp getur hún ferðast í tíma og rúmi um víðáttur Íslands ásamt vinkonu sinni. Bókin bregður upp myndum af áhugaverðum stöðum og skemmtilegum ævintýrum sem börn geta lent í á töfralandinu Íslandi og höfðar til barna á öllum aldri.  Meira
2.390 kr.

Rikka og töfrahringurinn í Japan

Hendrikka Waage

Rikka á töfrahring og með hans hjálp ferðast hún um Japan og lærir um menningu landsins, fallega staði og sögu þeirra. Með skarpskyggni sinni og einlægni sýnir hún lesendum að þrátt fyrir ólíka staði, matseld og menningu á mannfólkið meira sameiginlegt en ekki, hvar sem við búum í heiminum. Meira
1.999 kr.
 

Sagan af Loðinbarða

Endursögn: Jóhanna Á. Steingrímsdóttir

Myndskreyting: Margrét E. Laxness

 

Íslensk ævintýri eru vinsælt og eftirsótt lesefni fyrir börn á öllum aldri en hér segir frá tröllinu Loðinbarða sem fer til mannabyggða að biðja sér konu. Loðinbarði er að sjálfsögðu risastór og sterkur - en bóndadóttirin er miklu snjallari og platar hann upp úr skónum.

Meira
1.200 kr.

Sagan hennar systu / Stelksþula

Bragi Magnússon

Sagan af Systu er falleg lítil þula sem flestir muna eftir. Söguna, sem upphaflega var gefin út árið 1956, samdi og myndskreytti Bragi Magnússon til dætra sinna. Snýr maður svo bókinni við er að finna aðra þulu, Stelksþulu, sem Bragi samdi og sendi barnabörnum sínum til Möltu, árið 1984. Meira
990 kr.

Smárarnir

Höfundur: Þórður Helgason

Myndskreyting: Karitas Pálsdóttir

Smári er sjö ára gamall strákur sem á heima í Reykjavík. Hann er næstum alveg eins og flestir aðrir sjö ára strákar, með tvær hendur, tvo fætur, tvö augu, tvö eyru, eitt nef og einn munn. Smári hefur bara einn galla. Hann kann ekki að segja S. Þess vegna getur Smári ekki sagt nafnið sitt rétt.

Meira
690 kr.

Snuðra og Tuðra 1 - verða vinir

Iðunn Steinsdóttir

Myndskreyting: Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir

Systurnar Snuðra og Tuðra eru hræðilega óþægar, skítugar og tættar. Hér rífast þær heiftarlega og fara meira að segja að slást svo Snuðra meiðir sig og þarf að fara til læknis. En þegar hún kemur heim breytist ýmislegt.

Meira
900 kr.

Snuðra og Tuðra 2 - í búðarferð

Iðunn Steinsdóttir

Myndskreyting: Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir

Systurnar Snuðra og Tuðra eru óttalega óþægar og heimtufrekar og láta öllum illum látum ef þær fá ekki það sem þær vilja. Nú neita þær að borða matinn sinn og heimta bara eitthvað sem ekki er til.

Meira
900 kr.
 

Snuðra og Tuðra 3 - fara í strætó

Iðunn Steinsdóttir

Myndskreyting: Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir

Snuðra og Tuðra eru miklir fjörkálfar en stundum býsna frekar og tillitslausar. Nú taka þær strætó í bæinn með mömmu sinni. Í biðskýlinu troðast þær fram fyrir gamla konu, mann með staf og konu með barn í fanginu og láta öllum illum látum. Loksins tekur strætóbílstjórinn til sinna ráða.

Meira
900 kr.

Snuðra og Tuðra 4 - í miðbænum

Iðunn Steinsdóttir

Myndskreyting: Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir

Á sólbjörtum degi skoppa Snuðra og Tuðra með mömmu sinni í miðbænum. Það er margt sem freista og þær heimta ís og dót og sælgæti og hrópa í sífellu - kauptu, kauptu, kauptu! Loks þýtur Snuðra í burtu og týnist. Það er ekkert grín að villast í miðbænum innan um öll húsin og bílana.

Meira
900 kr.

Snuðra og Tuðra 5 - missa af matnum

Iðunn Steinsdóttir

Myndskreyting: Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir

Það er mikið að gera hjá Snuðru og Tuðru. Þær þurfa að sinna brúðunum sínum og hafa varla tíma til að borða með fjölskyldunni. Þær koma og stinga upp í sig nokkrum bitum og hlaupa svo frá miðju borðhaldi! Einn góðan veðurdag heldur mamma garðveislu fyrir skyldfólkið og ber fram uppáhaldsmat þeirra systra, kjötbollur og kartöflumús. - Og nú reynir á systurnar að nota mannasiðina.

Meira
900 kr.

Snuðra og Tuðra 6 - og eyðslupúkinn

Iðunn Steinsdóttir

Myndskreyting: Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir

Í sjónvarpinu er sífellt verið að auglýsa fína ofurdúkku og Snuðra og Tuðra horfa stóreygar á. Þær langar meira í hana en nokkuð annað í heiminum. Mömmu og pabba finnst hún allt of dýr en eyðslupúkinn hefur náð tangarhaldi á systrunum og tælir þær til vafasamra aðgerða.

Meira
900 kr.

Snuðra og Tuðra 7 - í jólaskapi

Iðunn Steinsdóttir

Myndskreyting: Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir

Fjörkálfarnir Snuðra og Tuðra hlakka til jólanna. Þær ætla að vera þægar og góðar, hjálpa til við að fina allt jóladótið, skreyta tréð og gera sig rosalega fínar áður en þær borða jólamatinn. Mamma snýst endalaust í kringum þær.

Meira
900 kr.
 

Sylvía og drekinn

Lawrence Schimel

Myndskreyting: Sara Rojo Pérez

Þýðing: Kristín Birgisdóttir

Sylvía er sjúk í ævintýri og langar til að hitta dreka!Oftast eru það bara prinsessur og gæsastúlkur sem komast í tæri við svoleiðis skrímsli og svo koma riddarar og bjarga þeim.

Meira
990 kr.

Sögur fyrir svefninn 1

Sögumaður: Heiðdís Norðfjörð

Ævintýri og bænir fyrir öll kvöld vikunnar. Þessar vinsælu hljóðbækur veita ró og notalegheit inn í barnaherbergið fyrir svefnin. Heiðdís hefur lesið sögur og ævintýri inn á fjölmargar snældur og samið lög við eigin texta og annarra, sem flutt hafa verið á hljómplötum og snældum og birt í blöðum og bókum.

Meira
2.490 kr.

Sögur fyrir svefninn 2

Sögumaður: Heiðdís Norðfjörð

Ævintýri og bænir fyrir öll kvöld vikunnar. Þessar vinsælu hljóðbækur veita ró og notalegheit inn í barnaherbergið fyrir svefnin. Heiðdís hefur lesið sögur og ævintýri inn á fjölmargar snældur og samið lög við eigin texta og annarra, sem flutt hafa verið á hljómplötum og snældum og birt í blöðum og bókum.

Meira
2.490 kr.

The Problem with Chickens

Bruce McMillan

Þetta er ensk útgáfa af bókinni Hænur eru hermikrákur. Sagan fjallar um nokkrar konur í litlu íslensku sjávarplássi sem vantar egg til matseldar og ákveða að fá sér hænur. Þegar hænurnar hætta að verpa finna þær leið til að leysa vandann. Íslenska listakonan Gunnella myndskreytir þessa skemmtilegu sögu eftir Bruce McMillan.
Meira
1.490 kr.

Tóta á ferð og flugi

Höfundur: Jóhanna Á. Steingrímsdóttir

Myndskreyting: Jean Posocco

Tóta litla bregður á leik og upplifir óvænt ævintýri úti í náttúrunni. Mús, maðkur, hunangsfluga, kjói og kónguló eru meðal dýranna sem hún rekst á, en þegar lontan í læknum skýtur henni skelk í bringu er henni nóg boðið.

Meira
1.290 kr.
 

Valhopp

Höfundur: Rufus Butler Seder

Þetta er ótrúlegt! Valhoppandi hestur, vappandi hani, flögrandi fiðrildi. Hver síða er heilt ævintýri sem hægt er að skoða aftur og aftur. Í þessari einstöku hreyfimyndabók lifna dýrin við þegar blaðsíðunum er flett. Nýstárleg blanda af tækni og hugmyndaflugi sem heillar bæði börn og fullorðna.

Meira
990 kr.

Ævintýri H.C. Andersen 1

Höfundur: H.C. Andersen

Sögumaður: Heiðdís Norðfjörð

Tveir geisladiskar með völdum þekktum ævintýrum eftir ævintýraskáldið mikla H.C. Andersen i vönduðum flutiningi Heiðdísar Norðfjörð. Steingrímur Thorsteinsson íslenskaði.

 Hlusta á brot úr bókinni

 

Meira
2.490 kr.

Ævintýri H.C. Andersen 2

Höfundur: H.C. Andersen

Sögumaður: Heiðdís Norðfjörð

Tveir geisladiskar með völdum þekktum ævintýrum eftir ævintýraskáldið mikla H.C. Andersen i vönduðum flutiningi Heiðdísar Norðfjörð. Steingrímur Thorsteinsson íslenskaði.

Meira
2.490 kr.

Aukaflokkar



Þetta vefsvæði byggir á Eplica