forlag með sál
Hænur eru hermikrákur

Hænur eru hermikrákur

Bruce McMillan

Myndskreyting: Gunnella

Íslensk þýðing: Sigurður A. Magnússon

Sagan fjallar um nokkrar konur í litlu íslensku sjávarplássi sem vantar egg til matseldar og ákveða að fá sér nokkrar hænur. Þegar hænurnar hætta að verpa finna þær leið til að leysa vandann. Þetta er bók fyrir þriggja til sjö ára börn en allir aldursflokkar geta notið hinna glæsilegu málverka Gunellu sem prýða bókina.

Harðband

Í litlu plássi á ystu strönd Íslands var kappnóg af eggjum, þó engar væru hænurnar. Sagan fjallar um nokkrar konur í litlu íslensku sjávarplássi sem vantar egg til matseldar og ákveða að fá sér nokkrar hænur. Þegar hænurnar hætta að verpa finna þær leið til að leysa vandann. Íslenska listakonan Gunnella myndskreytir þessa skemmtilegu sögu eftir Bruce McMillan.

Þetta er bók fyrir þriggja til sjö ára börn en allir aldursflokkar geta notið hinna glæsilegu málverka Gunellu sem prýða bókina. Frumleg og gamansöm saga sem endurspeglar íslenska menningu og hefðir og sýnir vel ráðkænsku íslensku kvenþjóðarinnar.

Hænur eru hermikrákur

Gunnella var heiðruð af NEW YORK TIMES og valin á lista tíu bestu myndskreyta árið 2005. Bókin var valin úr ‏þúsundum bókartitla sem koma út í Bandaríkjunum ár hvert og ‏er mikil upphefð að komast á ‏þennan lista.

Bókin er einnig til á ensku - The Problem with Chicken.

Verð 1.990 kr. Netverð 1.490 kr.

Aukaflokkar



Þetta vefsvæði byggir á Eplica