Höfundur: Bryndís Guðmundsdóttir
Myndskreyting: Margrét E. Laxness
Systkinin Ásdís og Óli eiga mömmu sem er öðruvísi en aðrar mömmur. Hún er samt besta mamma í heimi og minnir okkur á að engir tveir eru eins og hver manneskja er einstök. Einstök mamma hlaut barnabókaverðlaun Menntaráðs Reykjavíkurborgar 2008.
Meira
Til allrar hamingju er það ekki hlutskipti margra lítilla barna að dvelja langdvölum á sjúkrahúsi, fjarri fjölskyldu og vinum. Það fékk þó Lovísa María Sigurgeirsdóttir frá Hrísey að reyna og í bókinni Ég skal vera dugleg rifjar hún upp dvöl sína á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri þegar hún var lítil stelpa upp úr 1960.
Meira
Höfundur: Karen Levine
Íslensk þýðing: Vilborg Dagbjartsdóttir
Samantekt: Björk Bjarnadóttir
Myndskreyting: Guðrún Tryggvadóttir
Sagnir af landvættum og kynjadýrum hafa verið á vörum þjóðarinnar frá aldaöðli. Hér er að finna þjóðsögur sem veita innsýn í hinn fjölbreytilega og ævintýralega sagnaheim fyrr á tímum.
Meira
Teikningar: Þórir Karl Bragason Celin.
Erla vaknar einn morguninn við það að allir í kringum hana eru farnir að rífast. Áður en hún veit af er hún lent í miðjum Álfheimum.
Meira
Going Fishing er ensk útgáfa af bókinni Til fiskiveiða fóru. Þar segir frá dreng sem fer á veiðar með afa sínum og lærir ýmislegt um fisk og fiskveiðar. Íslendingar eru fiskveiðiþjóð. Það eru fiskar á peningunum og fiskar á frímerkjunum. Bruce McMillan hefur samið og myndskreytt margar barnabækur um Ísland.
Meira
Endursögn: Hildur Hermóðsdóttir
Myndskreyting: Kristín Arngrímsdóttir
Prakkarinn Grámann leikur á flesta sem á vegi hans verða; karlinn, kerlinguna, hirðmenn og höfðingja, meira að segja sjálfan kónginn og drottningu hans, sem hann platar hreinlega upp úr skónum.
Meira
Myndskreyting: Búi Kristjánsson
Hér er komin enn ein perlan frá hinum góðkunna og vinsæla rithöfundi Iðunni Steinsdóttur. Lítil eyja úti í Atlantshafi verður til. Loftandar og sæbúar hafa fylgst spenntir með tilurð landsins, og með hverju fjalli, fossi, klett og jökli verða til kraftmiklar og allsérstakar landvættir. Sumar eru brennheitar og aðrar ískaldar, það er kannski þess vegna sem þær eiga í sífelldum erjum.
Meira
Höfundur: Bryndís Bragadóttir
Myndir: Brian Pilkington
Í þessari leikjabók er leitast við að setja saman á einn stað sem fjölbreyttast úrval af leikjum, keppnum og þrautum sem nota mætti við hin ýmsu tækifæri. Leikirnir henta vel til skemmtunar og gamans í barnaafmælum og á mannamótum eða heima þar sem fjölskyldan er saman á góðri stund.
Meira
Myndskreyting: Freydís Kristjánsdóttir
Rammíslensk og nútímaleg sveitasaga fyrir alla þá sem hafa gaman af raunverulegum - og óraunverulegum sögum. Með hetjur á heilanum er fyrsta saga Guðjóns Ragnars Jónassonar en hann er kennari með M.Paed-próf í íslensku. Í lok hvers kafla eru orðskýringar og því er bókin tilvalin fyrir þá sem vilja auka orðaforða sinn.
Meira
Höfundur: Þórður Helgason
Myndskreyting: Karitas Pálsdóttir
Smári er sjö ára gamall strákur sem á heima í Reykjavík. Hann er næstum alveg eins og flestir aðrir sjö ára strákar, með tvær hendur, tvo fætur, tvö augu, tvö eyru, eitt nef og einn munn. Smári hefur bara einn galla. Hann kann ekki að segja S. Þess vegna getur Smári ekki sagt nafnið sitt rétt.
Meira
Höfundur: Hulda Ólafsdóttir
Myndskreyting: Jean Antoine Posocco.
Karl Theódór er sólskinsbarn. Samt var svo mikil rigning daginn sem hann fæddist að fólkið í Keflavík, bænum þar sem hann bjó, hafði aldrei vitað annað eins ... Karli Theódór finnst gaman í leikskólanum og enn skemmtilegra þegar hann byrjar í 1.bekk. Hann hefur brennandi áhuga á öllu í kringum sig, hvort sem það er sandkassaleikur, lífið í skólanum, fótbolti eða heimsmálin.
Meira
Í litlu fiskiþorpi á Íslandi eru tveir bátar að fara í róður. Friðrik Örn fær að fara með öðrum þeirra. Friðrik afi hans veiðir á stöng. Haddi afi notar net til að veiða hrognkelsi, sem er ekki fallegasti fiskur í heimi. Bókin er skreytt fjölda ljósmynda frá Breiðafirði og í lok bókarinnar eru fræðslukaflar um þorskinn og hrognkelsið. Íslandsvinurinn Bruce Mcmillan er einnig höfundur hinna geysivinsælu og verðlaunuðu Hænur eru hermikrákur.
Meira
Höfundur: Moni Nilsson-Brattström
Þýðandi: Friðrik Erlingsson
Tsatsiki fer nú til Grikklands og kynnist pabba kolkrabba. Margt gerist hjá 7 ára strák, ástamálin fara að flækjast og kannski er Marteinn hlandrotta orðinn fyllirotta!
Meira