Valmynd.
Í litlu fiskiþorpi á Íslandi eru tveir bátar að fara í róður. Friðrik Örn fær að fara með öðrum þeirra. Friðrik afi hans veiðir á stöng. Haddi afi notar net til að veiða hrognkelsi, sem er ekki fallegasti fiskur í heimi. Bókin er skreytt fjölda ljósmynda frá Breiðafirði og í lok bókarinnar eru fræðslukaflar um þorskinn og hrognkelsið. Íslandsvinurinn Bruce Mcmillan er einnig höfundur hinna geysivinsælu og verðlaunuðu Hænur eru hermikrákur.
Harðband
Bruce McMillan hefur skrifað og myndskreytt fleiri barnabækur um íslensk efni en nokkur annar bandarískur höfundur. Til fiskiveiða fóru er sjötta bók hans með íslensku efni og fertugasta og þriðja bókin sem hann hefur samið. Bruce hefur hlotið verðlaun og viðurkenningar fyrir verk sín. Hann ver oft sumrunum á Íslandi en býr í Shapleigh í Maine. Bókin er einnig til á ensku undir nafninu Going Fishing.