forlag með sál
Kynjaverur í Kverkfjöllum

Kynjaverur í Kverkfjöllum

Iðunn Steinsdóttir

Myndskreyting: Búi Kristjánsson

Hér er komin enn ein perlan frá hinum góðkunna og vinsæla rithöfundi Iðunni Steinsdóttur. Lítil eyja úti í Atlantshafi verður til. Loftandar og sæbúar hafa fylgst spenntir með tilurð landsins, og með hverju fjalli, fossi, klett og jökli verða til kraftmiklar og allsérstakar landvættir. Sumar eru brennheitar og aðrar ískaldar, það er kannski þess vegna sem þær eiga í sífelldum erjum.

Harðband

En einn góðan veðurdag birtist mannfólk á fiskfuglum og sest að á landinu með kræklótta hausinn. Margar aldir líða og mannfólkið er sífellt með ný uppátæki, eins og að þeytast um hálendið á fýlufákum og fljúga í gegnum skelkaða loftanda á ógnvænlegum dúndurdrekum.

Skelfilegir atburðir gerast síðan í Kverkfjöllum og loftandar, yltröll, hrímþursar, álfar, hafmeyjar og marbendlar ákveða loksins að taka málin í sínar hendur. Nú reynir á baráttuvilja þeirra og samstöðu ... geta allar landvættirnar unnið saman og varið landið sitt?

Áhrifamikil og falleg saga um vináttu, traust og virðingu fyrir landinu okkar og öllum sem þar búa.


Verð 2.490 kr. Netverð 990 kr.

Aukaflokkar



Þetta vefsvæði byggir á Eplica