forlag með sál
Sólskinsbarn

Sólskinsbarn

Höfundur: Hulda Ólafsdóttir

Myndskreyting: Jean Antoine Posocco. 

Karl Theódór er sólskinsbarn. Samt var svo mikil rigning daginn sem hann fæddist að fólkið í Keflavík, bænum þar sem hann bjó, hafði aldrei vitað annað eins ... Karli Theódór finnst gaman í leikskólanum og enn skemmtilegra þegar hann byrjar í 1.bekk. Hann hefur brennandi áhuga á öllu í kringum sig, hvort sem það er sandkassaleikur, lífið í skólanum, fótbolti eða heimsmálin.

Harðband

Í skólanum kynnist hann mörgum skemmtilegum krökkum og meðal annars setja þeir sér í sameiningu bekkjarreglur – en stundum er auðveldara að setja reglur en fara eftir þeim.

Sólskinsbarn gefur hlýlega og raunsæja mynd af veröld barna í dag. Þetta er tilvalin bók fyrir litla lestrarhesta því hún er með stóru letri og fallegum teikningum eftir Jean Antoine Posocco. Þessi bráðskemmtilega saga er fyrsta bók Huldu Ólafsdóttur en hún hefur skrifað fjölmörg leikrit og leikstýrt áhugaleikhópum. Hún hefur starfað lengi sem leikskólastjóri og kennari aðallega í Reykjavík og Reykjanesbæ en er nú búsett í Lyon í Frakklandi.

Verð 2.290 kr. Netverð 1.290 kr.

Aukaflokkar



Þetta vefsvæði byggir á Eplica