forlag með sál

Unglingar

Carpe diem

Eyrún Ýr Tryggvadóttir

og Kristjana María Kristjánsdóttir
Sláandi unglingasaga sem minnir á hve lífið getur verið hverfult. Birna er ný í skólanum og hálfutanveltu og ekki hjálpar heimilislífið, sem er vægast sagt ekki uppbyggilegt. Hún kynnist fyrirmyndarunglingnum Hallgrími sem á samheldna fjölskyldu og hefur allt til alls. Þrátt fyrir ólíkan bakgrunn myndast á milli þeirra sterk vinátta og þau laðast hvort að öðru. Meira
1.990 kr.

Ef þú bara vissir

Höfundar: Marta María Jónasdóttir og Þóra Sigurðardóttir

Líf Klöru Thoroddsen var fullkomið - eða því sem næst ... Fyrir utan speltsjúka og kaupóða, hormónabrenglaða móður, pabba með sjálfskipaðann athyglisbrest og tvo bræður sem minntu frekar á skæruliða en smábörn, var tilveran bara nokkuð góð... þar til allt fór í steik!

Meira
1.290 kr.

Ég skal vera dugleg

Lovísa María Sigurgeirsdóttir

Til allrar hamingju er það ekki hlutskipti margra lítilla barna að dvelja langdvölum á sjúkrahúsi, fjarri fjölskyldu og vinum. Það fékk þó Lovísa María Sigurgeirsdóttir frá Hrísey að reyna og í bókinni Ég skal vera dugleg rifjar hún upp dvöl sína á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri þegar hún var lítil stelpa upp úr 1960.

Meira
1.490 kr.

Fangarnir í trénu

Harpa Dís Hákonardóttir

Erla er að undirbúa boð heima hjá sér þegar hún er skyndilega hrifin til Álfheima. Hún kemst að því að vinum hennar, konungsbörnunum, er haldið föngnum af Völmundi galdrakarli og svartdvergunum hans í álagaskóginum í Furudal og hún ein getur bjargað þeim. Meira
1.990 kr.

Galdrasteinninn

Harpa Dís Hákonardóttir

Teikningar: Þórir Karl Bragason Celin. 

Erla vaknar einn morguninn við það að allir í kringum hana eru farnir að rífast. Áður en hún veit af er hún lent í miðjum Álfheimum.

Meira
1.990 kr.
 

Galdur Vísdómsbókarinnar

Höfundur: Iðunn Steinsdóttir

Mikill voði steðjar að Humlabyggð þegar Elvína, ævaforn jarlsfrú, rís upp frá dauðum. Það er aðeins eitt til bjargar og það er að finna Vísdómsbókina sem hefur verið týnd í margar aldir. Hún geymir ótal töfraþulur sem geta skipt sköpum fyrir sögupersónurnar.

Meira
990 kr.

Heimili fröken Peregrine fyrir sérkennileg börn

Þegar Jakob er lítill segir afi Portman honum sögur af dularfullu barnaheimili sem hann ólst upp á og sýnir honum furðlegar ljósmyndir af munaðarlausum börnum. Heimili fröken Peregrine fyrir sérkennileg börn, ævintýrasaga fyrir unglinga og fullorðna. Meira
2.790 kr.

Martröð

Höfundur: Hallveig Thorlacius

Martröð fjallar um Hrefnu, venjulega íslensk indjánastelpa, sem fer í ferðalag með foreldrum sínum til Mexíkó. Þar lendir hún í hringiðu glæpa og þarf að takast á við mafíuna í leit sinni að sannleikanum um það hvað varð um mexíkóska móður hennar. Þegar hún hittir ömmu sína tengist hún Mexíkó sterkum böndum.

Meira
999 kr.

Mánudagur - bara einu sinni í viku

Iðunn Steinsdóttir

Stundum er haf og himinn milli lífsins í skólanum og heima fyrir og það eru ekki allir sem geta leitað skjóls heima hjá sér eftir taugatrekkjandi skóladag. Spennandi og áhrifarík saga um vináttu, einelti, sundrung og samstöðu eftir Iðunni Steinsdóttur sem á 25 ára rithöfundarafmæli um þessar mundir.

Meira
990 kr.

Með hetjur á heilanum

Guðjón Ragnar Jónasson

Myndskreyting: Freydís Kristjánsdóttir

Rammíslensk og nútímaleg sveitasaga fyrir alla þá sem hafa gaman af raunverulegum - og óraunverulegum sögum. Með hetjur á heilanum er fyrsta saga Guðjóns Ragnars Jónassonar en hann er kennari með M.Paed-próf í íslensku. Í lok hvers kafla eru orðskýringar og því er bókin tilvalin fyrir þá sem vilja auka orðaforða sinn.

Meira
1.490 kr.
 

Mitt eigið harmagedón

Einstök saga þar sem tveir ólíkir heimar takast á. Dagbjört er alin upp í samfélagi votta Jehóva en þetta sumar kynnist hún heillandi valkostum sem vekja spurningar um þá trú og lífsstíl sem hún hefur treyst á.
Meira
2.490 kr.

Nornafár

Höfundur: Ragnar Gíslason

Það hefur ýmislegt drifið á daga Dagmarar og ekki tekur betra við í nýja skólanum. Hvað vildu þær eiginlega þessar svartklæddu stelpur sem ofsóttu hana nótt sem nýtan dag? Eru þær nornir í raun og veru? - Er vúdúgaldur eitthvað annað en meinlaus leikur? - Eru draumar Dagmarar bara martraðir eða ferðast hún virkilega um í tíma og rúmi?

Meira
690 kr.

Rúna trúnaðarmál

Höfundur: Gerður Berndsen

Stundum er gaman að eiga leyndarmál - stundum ekki ...

Krissa er þrettán ára og trúir dagbókinni sinni fyrir öllum sínum leyndarmálum. Hún er spennt að byrja í 8. bekk og þar hittir hún draumaprinsinn. Það skiptir hana miklu máli að falla inn í hópinn og stundum verður það henni og vinkonunum dýrkeypt að þykjast eldri en þær eru.

Meira
690 kr.

Setuliðið

Höfundur: Ragnar Gíslason

Bókin segir frá krökkum í Hafnarfirði sem finna beinaleifar auk fjársjóðs. Stundum er hættulegt að gramsa í fortíðinni og skyndilega lifna við dramatískir atburðir aftan úr forneskju. Ragnar Gíslason hefur unnið með ungu fólki í áraraðir. Hann hefur fengist mikið við skrif og hér lítur dagsins ljós hans fyrsta spennusaga fyrir unglinga.

Meira
690 kr.

Tara

Höfundur: Ragnar Gíslason

Unnar, 13 ára, er lagður í einelti af skólafélögunum og Konni, besti vinur hans, er kominn í hjólastól eftir hörmulegt slys. Dularfull stúlka, Tara, nær sambandi við þá gegnum internetið og saman ferðast þau um ókannaðar víddir sem breyta tilveru þeirra allra á eftirminnilegan hátt.

Meira
690 kr.
 

Vinur, sonur, bróðir

Þórður Helgason er ljóðskáld og vel þekktur barna- og unglingabókahöfundur. Hann hefur nú skrifað fyndna, skemmtilega og spennandi sögu af nýja Íslandi. Meira
1.490 kr.

Aukaflokkar



Þetta vefsvæði byggir á Eplica