forlag með sál
Með hetjur á heilanum

Með hetjur á heilanum

Guðjón Ragnar Jónasson

Myndskreyting: Freydís Kristjánsdóttir

Rammíslensk og nútímaleg sveitasaga fyrir alla þá sem hafa gaman af raunverulegum - og óraunverulegum sögum. Með hetjur á heilanum er fyrsta saga Guðjóns Ragnars Jónassonar en hann er kennari með M.Paed-próf í íslensku. Í lok hvers kafla eru orðskýringar og því er bókin tilvalin fyrir þá sem vilja auka orðaforða sinn.

Harðband




Kæri lesandi ! Ég heiti Sigurður Ólafsson... Kannski er ég aðeins of formlegur - ég byrja aftur. Ég heiti Siggi og er 13 ára brettagaur að byrja í 8. bekk. Þótt ég hafi alist upp í Reykjavík hefur mér alltaf þótt gaman að fara í sveitina á sumrin til frændfólks míns í Fljótshlíðinni. Áki frændi er sérlega montinn af því að búa á söguslóðum Njálu. Hann talar gamaldags íslensku sem er bráðsmitandi. Það er neflilega alveg hægt að vera brettagaur en tala samt eins og fornhetja.

Það held ég nú, o sei sei !!

Síðasta sumar breyttist allt heldur betur. Meðal annars eignaðist ég marga nýja vini og suma þeirra ekki einusinni af þessum heimi.

Góða skemmtun!

Siggi




Vara ekki fáanleg

Aukaflokkar



Þetta vefsvæði byggir á Eplica