forlag með sál
Mánudagur - bara einu sinni í viku

Mánudagur - bara einu sinni í viku

Iðunn Steinsdóttir

Stundum er haf og himinn milli lífsins í skólanum og heima fyrir og það eru ekki allir sem geta leitað skjóls heima hjá sér eftir taugatrekkjandi skóladag. Spennandi og áhrifarík saga um vináttu, einelti, sundrung og samstöðu eftir Iðunni Steinsdóttur sem á 25 ára rithöfundarafmæli um þessar mundir.

Kilja

Unnur er í 9. bekk og alveg búin að fá nóg af látunum í skólasystkinum sínum. Mánudagar eru sérstaklega slæmir. Fannar og vinir hans grípa hvert tækifæri til að stríða bekkjarfélögunum. Krakkarnir forðast þá eins og heitan eldinn en Fannari finnst það bara fínt, þá vita þeir ekki hvernig honum líður í raun og veru.

Ingvi er nýfluttur heim frá Þýskalandi. Hann er helsta fórnarlamb strákanna en Unnur fær hann í lið með sér til að gera uppreisn gegn ofbeldinu og stríðninni. Í þessum fjölbreytilega unglingahópi er ekki allt sem sýnist. Ýmislegt óvænt kemur í ljós og um vorið líta krakkarnir til baka og vita að þeir munu aldrei gleyma þessum vetri - vetrinum þegar allt breyttist.

Verð 2.490 kr. Netverð 990 kr.

Aukaflokkar



Þetta vefsvæði byggir á Eplica