forlag með sál
Rikka og töfrahringurinn í Japan

Rikka og töfrahringurinn í Japan

Hendrikka Waage

Rikka á töfrahring og með hans hjálp ferðast hún um Japan og lærir um menningu landsins, fallega staði og sögu þeirra. Með skarpskyggni sinni og einlægni sýnir hún lesendum að þrátt fyrir ólíka staði, matseld og menningu á mannfólkið meira sameiginlegt en ekki, hvar sem við búum í heiminum.

Harðband

Rikka og töfrahringurinn í Japan er þriðja bókin eftir Hendrikku Waage um káta ferðalanginn hana Rikku en fyrstu tvær bækurnar um Rikku hafa notið mikilla vinsælda bæði hér og erlendis, en þá ferðaðist hún um Ísland og Indland. Þessi bók er eins og þær fyrri frábær hvatning fyrir komandi kynslóðir að sýna fjölbreytileikanum meira umburðarlyndi og skilning.

Inga María Brynjarsdóttir myndskreytti.

Hluti af tekjum bóksölunnar rennur til góðgerðasjóðs Alþingis barna, www.kidsparliament.org.

Verð 3.490 kr. Netverð 1.999 kr.

Aukaflokkar



Þetta vefsvæði byggir á Eplica