Valmynd.
Harðband
Tilgangurinn er að skapa löngun hjá smáfólkinu til að ferðast um landið og njóta dásemda náttúrunnar. Þetta er einnig dálítil fræðslusaga sem vekur okkur til meðvitundar um hvers vegna við eigum að gæta jarðarinnar fyrir komandi kynslóðir.
Hendrikka Waage, skartgripahönnuður, sendir hér frá sér sína fyrstu barnabók og er hún einnig gefin út á ensku.
Hluti af tekjum bóksölunnar rennur til góðgerðasjóðs Alþingis barna, en tilgangur sjóðsins er að skapa heim þar sem allir hafa jöfn tækifæri - án mismununar vegna fjárhagsstöðu, kynþáttar eða trúarskoðana. www.kidsparliament.org
Smelttu hér til að lesa um Rikka og töfrahringurinn á Indlandi
Þetta er fyrsta bókin í bókaröð af svipuðum toga, sem ætlað er að kanna spennandi og framandi lönd sem hvert og eitt býr yfir sínum sérkennum og menningu. Mikið er þetta falleg saga. Og svo er hún líka kennslustund í landafræði. Það var unaðsleg reynsla að fá að kynnast Íslandi með augum yngstu kynslóðarinnar. Boðskapur sögunnar er greinilega sá að við eigum að láta gott af okkur leiða, vera væn og vingjarnleg – og biðja þess að heimurinn verði réttlátari og friðvænlegri. Þakka þér, Hendrikka, fyrir að leyfa okkur að kynnast barninu í sjálfri þér. Betty Williams – friðarverðlaunahafi Nóbels
Þetta er fyrsta bókin í bókaröð af svipuðum toga, sem ætlað er að kanna spennandi og framandi lönd sem hvert og eitt býr yfir sínum sérkennum og menningu.
Mikið er þetta falleg saga. Og svo er hún líka kennslustund í landafræði. Það var unaðsleg reynsla að fá að kynnast Íslandi með augum yngstu kynslóðarinnar. Boðskapur sögunnar er greinilega sá að við eigum að láta gott af okkur leiða, vera væn og vingjarnleg – og biðja þess að heimurinn verði réttlátari og friðvænlegri. Þakka þér, Hendrikka, fyrir að leyfa okkur að kynnast barninu í sjálfri þér.
Betty Williams – friðarverðlaunahafi Nóbels
Sagan er afspyrnu skemmtileg og full af krafti og orku – skyldulesning fyrir börn á aldrinum 5 til 11 ára. Magnús Scheving – Sportacus – Latibær
Sagan er afspyrnu skemmtileg og full af krafti og orku – skyldulesning fyrir börn á aldrinum 5 til 11 ára.
Magnús Scheving – Sportacus – Latibær
http://www.rikkaogtofrahringurinn.com/