forlag með sál
Enjoy - Verði þér að góðu

Enjoy - Verði þér að góðu

Veitingahúsavísir um Reykjavík


Reykjavik´s culinary scene has grown rapidly and the many Reykjavik restaurants offer a wide variety of menus and are a true potpourri of styles. With attention to ambience, food and location, this selection of establishments in the Icelandic capital covers the whole price range. They are presented from the authors´ view through first-class photos and a descriptive and informative text. The two authors have relished and studied the culinary scene in Iceland for a number of years.

Softcover

SALKA kynnir stolt nýjan veitingahúsavísi á ensku um Reykjavík. Feðginin Helga Sigríður Aradóttir og Ari Trausti Guðmundsson þekkja reykvíska veitingastaði mjög vel og miðla til ferðamannsins af reynslu sinni. 32 veitingastaðir í borginni eru kynntir og allir hafa þeir það sameiginlegt að bjóða upp á góðan mat. Í bókinni er að finna grunnupplýsingar um hvern veitingastað fyrir sig, s.s. verð, matreiðslumenn, afgreiðslutíma og sérstöðu staðarins. Einnig er stutt umfjöllun um staðinn, en tekið skal fram að ekki er um gagnrýni að ræða.

Stórar og glæsilegar litmyndir prýða bókina sem teknar voru af ljósmyndurunum Ragnari Th. Sigurðssyni og Ólafi Þórissyni. Helga Sigríður Aradóttir er nú í námi við hönnunarstjórnun í París og Ari Trausti er landsmönnum vel kunnur, en hann er jarðfræðingur og sjónvarpsmaður sem hefur gefið út hinar ýmsu bækur.

Enjoy – Verði þér að góðu
er í kiljubroti, 167 blaðsíður og var prentuð hjá Prentmet. Eyþór Páll Eyþórsson sá um hönnun bókarinnar.
Verð 3.990 kr. Netverð 1.990 kr.

Aukaflokkar



Þetta vefsvæði byggir á Eplica