forlag með sál

Ævisögur

Baráttan fyrir börnin - Reynslusaga móður af einhverfu

Karen Kristín Ralston

Karen Kristín er Bandaríkjamaður, búsett á Íslandi og tvö fjögurra barna hennar hafa verið greind með einhverfu. Baráttan fyrir börnin er persónuleg saga hennar og fjölskyldu hennar í baráttu þeirra við þennan erfiða og einstaklingsbundna sjúkdóm. Meira
1.990 kr.

Brautryðjandinn - Júlíana Jónsdóttir skáldkona

Höfundur: Guðrún P. Helgadóttir

Í þessari bók rekur höfundur æviferil Júlíönu Jónsdóttur en hún var fyrst íslenskra kvenna sem fékk ljóðabók sína gefna út. Sagt er frá uppvaxtarárum hennar á Rauðsgili í Borgarfirði, dvöl hennar í Akureyjum á Breiðafirði, Stykkishólmi og Reykjavík og loks veru hennar vestan hafs, þar sem hún bjó til æviloka.

Meira
690 kr.

Dagbók Hélène Berr 1942-1944

Hélène Berr

Íslensk þýðing: Ólöf Pétursdóttir

Hélène Berr var ung stúlka af gyðingaættum sem bjó við gott atlæti hjá velstæðum foreldrum sínum í París og stundaði nám við Sorbonne-háskóla þegar síðari heimstyrjöldin skall á. Það þrengdi sífellt meira að fjölskyldunni eins og öðrum gyðingum sem var smám saman útskúfað úr samfélaginu.

Meira
1.490 kr.

Dewey

Litli bókasafnskötturinn sem snéri öllu á hvolf

Ævisaga Deweys hefur vakið verðskuldað athygli og kátínu, enda hér á ferð einstök og mannbætandi frásögn um sigra og sorgir fólks þar sem dýrmæt vinátta og hollusta lítils kattar skiptir sköpum. Meira
999 kr.

Elfa Gísla og hinar sögurnar

Elfa Gísladóttir og Anna Ólafsdóttir Björnsson

Elfa Gísladóttir hefur ávalt þurft að standa á eigin fótum og sjaldan silgt lignan sjó. Tími uppgjörs og sátta er runnin upp og nú kemur fyrir almenningssjónir ævintýraleg og dramatísk saga Elfu.

Meira
990 kr.
 

Elíasarbók

Sögur og – Elías Mar

Í bók þessari birtist í fyrsta skipti fjölmargt sem hraut úr penna meistarans Elíasar Mar. Hann var einn af þeim sem á sinni tíð setti sterkan svip á reykvískt mannlíf og skipaði sér ákveðinn sess í íslensku bókmenntaflórunni, enda óhræddur við að reyna á þanþol formsins. Meira
2.750 kr.

Ég er Nojoud, 10 ára - fráskilin

Höfundur: Delphine Minoui

Þýðandi: Laufey S. Sigurðardóttir

Litla jemenska stúlkan Nojoud sýndi ótrúlegan kjark þegar hún óskaði eftir skilnaði og reis þar með upp gegn fornum hefðum í landi sínu.

Meira
1.490 kr.

Ég gefst aldrei upp

Ég gefst aldrei upp segir frá hetjulegri baráttu Borghildar Guðmundsdóttur fyrir að halda börnum sínum. Meira
2.999 kr.

Ég skal vera dugleg

Lovísa María Sigurgeirsdóttir

Til allrar hamingju er það ekki hlutskipti margra lítilla barna að dvelja langdvölum á sjúkrahúsi, fjarri fjölskyldu og vinum. Það fékk þó Lovísa María Sigurgeirsdóttir frá Hrísey að reyna og í bókinni Ég skal vera dugleg rifjar hún upp dvöl sína á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri þegar hún var lítil stelpa upp úr 1960.

Meira
1.490 kr.

Ferill til frama - Ævisaga Björgvins Guðmundssonar tónskálds

Haukur Ágústsson
Saga Björgvins Guðmundssonar, tónskálds, er saga manns sem átti sér draum. Allar kringumstæður gáfu til kynna að sá draumur gæti ekki ræst en hann gerði það samt. Meira
3.990 kr.
 

Jesús og Búdda - sami boðskapurinn

Jesús og Búdda. Hverjir voru þessir menn? Hvaðan komu þeir og hvað gerðu þeir? Í þessari bók mun ýmislegt koma lesandanum á óvart. Þrátt fyrir að þá skilji að fimm hundruð ár í tíma og þrjú þúsund mílur í rúmi eru ótrúlega margar hliðstæður í lífi þeirra og starfi. Meira
1.490 kr.

Maður gengur með; dagbók verðandi föður

Höfundur: Darri Johansen

Myndskreyting: Jón Ágúst Pálmason

Ég heiti Darri Þegar kærastan mín varð ólétt settist ég niður og byrjaði að skrifa dagbók. Veit eiginlega ekki af hverju. Ég byrjaði bara ...  

Bókin er stundum fyndin, stundum alvarleg. Svolítið eins og lífið sjálft. Þetta er ekki kennslubók. Bara mín saga. Mínir 9 mánuðir.

Meira
1.190 kr.

Mynd af konu - Vilborg Dagbjartsdóttir

Skrásetjari: Kristín Marja Baldursdóttir

Vilborg Dagbjartsdóttir er meðal virtustu skálda þjóðarinnar og sérlega farsæll og vinsæll kennari. Hún hefur ákveðnar skoðanir og einstaka frásagnargáfu eins og fram kemur í þessari leiftrandi skemmtilegu bók þar sem hún leysir frá skjóðunni og deilir ýmsum áhugaverðum minningabrotum með lesandanum.

Meira
920 kr.

Ótuktin

Höfundur: Anna Pálína Árnadóttir

Ótuktin þaut beint á metsölulista þegar hún kom út vorið 2004 og hefur notið mikilla vinsælda síðan. Anna Pálína greindist með krabbamein 39 ára gömul. Samfara hefðbundinni krabbameinsmeðferð notfærði hún sér hugleiðslu og óhefðbundnar lækningar.

Meira
1.290 kr.

Ótuktin hljóðbók

Höfundur: Anna Pálína Árnadóttir

Ótuktin þaut beint á metsölulista þegar hún kom út vorið 2004 og hefur notið mikilla vinsælda síðan. Anna Pálína greindist með krabbamein 39 ára gömul. Samfara hefðbundinni krabbameinsmeðferð notfærði hún sér hugleiðslu og óhefðbundnar lækningar.

Meira
1.290 kr.
 

Postulín

Freyja Haraldsdóttir & Alma Guðmundsdóttir

Freyja Haraldsdóttir hefur stökk bein sem brotna við minnsta hnjask. Þrátt fyrir ótal hindranir tekur hún fullan þátt í lífinu. Hér deilir hún með lesanda einstakri reynslu og jákvæðri sýn á lífið. Hún sýnir okkur tilveruna í nýju og bjartara ljósi. Þetta er bók sem breytir lesendum sínum.

Meira
1.490 kr.

Reynsluslóðir lögreglumanns og íþróttakappa

Höfundur: Hallgrímur Jónsson

Hallgrímur fæddist á Bessastöðum en ólst upp á Laxamýri í Suður-Þingeyjarsýslu og kennir sig við þann stað. Hér segir hann frá uppvexti sínum í íslenskri sveit á fyrri hluta tuttugstu aldar; frá eftirminnilegu fólki og atburðum. Meira
1.990 kr.

Síðasti fyrirlesturinn

Höfundur: Randy Pausch með aðstoð Jeffrey Zaslow

Þýðandi: Ólöf Pétursdóttir

Þegar Randy Pausch, 46 ára prófessor í tölvunarfræðum við Carnegie Mellon háskóla, var beðinn að tala um faglega vegferð sína hafði hann nýlega fengið að vita að hann ætti aðeins fáa mánuði eftir ólifaða. Útkoman var Síðasti fyrirlesturinn, sem fjallar um mikilvægi þess að stefna að ákveðnu marki.

Meira
999 kr.

Skáldið sem sólin kyssti - ævisaga Guðmundar Böðvarssonar

Höfundur: Silja Aðalsteinsdóttir

Í bókinni Skáldið sem sólin kyssti fjallar Silja Aðalsteinsdóttir um Guðmund Böðvarsson, skáld og bónda á Kirkjubóli í Hvítársíðu. Sagt er frá ætt Guðmundar og uppruna, foreldrum hans og bernskuárum og árunum sem hann dvaldi á Gilsbakka í skjóli séra Magnúsar Andréssonar.

Meira
1.980 kr.

Skáldkonur fyrri alda

Höfundur: Guðrún P. Helgadóttir

Í þessu verki sínu skýrir höfundur frá hlutdeild íslenskra kvenna í sköpunarsögu íslenskra bókmennta fyrstu aldirnar og segir frá þekktum skáldkonum fyrri alda, þeim Þórunni á Grund, Steinunni á Keldum, Þórhildi skáldkonu, Jóreiði í Miðjumdal, Steinunni í Höfn, Látra-Björgu, Maddömunni á Prestbakka, Ljósavatnssystrum og Vatnsenda-Rósu.

Meira
980 kr.
 

Skáld - Rósa, ljósmóðirinn Rósa Guðmundsdóttir

Höfundur: Sr. Gísli H. Kolbeins

Skáld-Rósa eða Vatnsenda-Rósa varð þjóðþekkt í lifanda lífi og er löngu orðin goðsögn. Sr. Gísli H. Kolbeins minnist hér Rósu Guðmundsdóttur. Hann rekur einstæða sögu hennar svo eftirminnilega að líklega mun þjóðin muna Skáld-Rósu um ókomin ár.

Meira
1.690 kr.

Skip mitt braut við Afrikuströnd

– örlagasaga Fjólu Steinsdóttur Mileris og fjölskyldu hennar

Það má með sanni segja að líf Fjólu Steinsdóttur Mileris hafi verið viðburðaríkt og hefur hún lifað meira en margir. Nú býr hún ein í íbúð sinni í Reykjavík í hárri elli. Hér skyggnist Fjóla til baka með sonarsyni sínum og sviptir hulunni af gömlum minningum um ástir og örlög, sorgir og sigra.
Meira
1.299 kr.

Þeir tóku allt, meira að segja nafnið mitt

Höfundur: Thea Halo

Íslensk þýðing: Bryndís Víglundsdóttir

Pontus-Grikkir voru reknir frá heimkynum sínum í dauðagöngu um fjallhéruð Norður-Tyrklands og eyðimörk Sýrlands vorið 1920. Þar á meðal var stúlkan Themía sem missti systkini sín, foreldra, vini og nágranna, en lifði af fyrir ótrúlega seiglu og lífsvilja. Þetta er heillandi saga um mannlega reisn, saga konu sem bjó yfir styrk, visku og kærleika til að gera hið besta úr þeim aðstæðum sem lífið færði henni og láta ekki bitrar minningar halda sér í heljargreipum.

Meira
1.990 kr.

Þessi kona

í máli og myndum frá 1921-

Guðríður B. Helgadóttir í Austurhlíð í Húnavatnssýslu er þekkt fyrir ötul störf að félagsmálum og náttúruvernd. Hún er líka einstök listakona og hefur haldið sýningar á listaverkum sínum sem eru útsaumaðar myndir, margar fegurri og fíngerðari en olíumálverk eða vatnslitamyndir. Í bókinni segir hún frá lífshlaupi sínu, baráttumálum og listsköpun.

Meira
3.990 kr.

Þórðargleði

Þættir úr höfundarsögu Elíasar Mar

Margt hefur verið á huldu um höfundarsögu Elíasar Mar skálds og rithöfundar. Bók þessi varpar ljósi á þátt andhetjunnar í sögu þjóðarinnar á síðasta hluta 20. aldar. Meira
1.990 kr.
 

Aukaflokkar



Þetta vefsvæði byggir á Eplica