Valmynd.
Höfundur: Guðrún P. Helgadóttir
Í þessari bók rekur höfundur æviferil Júlíönu Jónsdóttur en hún var fyrst íslenskra kvenna sem fékk ljóðabók sína gefna út. Sagt er frá uppvaxtarárum hennar á Rauðsgili í Borgarfirði, dvöl hennar í Akureyjum á Breiðafirði, Stykkishólmi og Reykjavík og loks veru hennar vestan hafs, þar sem hún bjó til æviloka.
Harðband
Kærkomin bók öllum þeim sem unna skáldskap og brautryðjendastarfi íslenskra kvenna.
„Júlíana er ung stúlka í Akureyjum og mætir þar á vissan hátt örlögum sínum. Þar eignast hún vonbiðil, sem brást henni og hún virðist syrgja alla ævi. Hún hefur átt í miklu hugarstríði, og einlægni hennar kemur skýrt fram í vísu í ljoðabók hennar, Stúlku:
Hjartað stynur, hugur minn,
helst í skyn það gefur,
böl á dynur, bliknar kunn,
brugðist vinur hefur.“