forlag með sál
Mynd af konu - Vilborg Dagbjartsdóttir

Mynd af konu - Vilborg Dagbjartsdóttir

Skrásetjari: Kristín Marja Baldursdóttir

Vilborg Dagbjartsdóttir er meðal virtustu skálda þjóðarinnar og sérlega farsæll og vinsæll kennari. Hún hefur ákveðnar skoðanir og einstaka frásagnargáfu eins og fram kemur í þessari leiftrandi skemmtilegu bók þar sem hún leysir frá skjóðunni og deilir ýmsum áhugaverðum minningabrotum með lesandanum.

Harðband

Vilborg hefur lifað tímana tvenna og segir hér frá uppvexti sínum, skáldskapnum, rauðsokkatímanum og litríkum samferðamönnum en lífssýn hennar endurspeglar djúpa visku, glettni og mannskilning.

Kristín Marja Baldursdóttir rithöfundur skráði bókina eftir einstæðum samtölum þeirra - þar sem mætast tvö skáld, kennarar og lífskúnstnerar. Bókin er prýdd fjölda mynda frá mismunandi tímabilum í lífi Vilborgar.

Vara ekki fáanleg

Aukaflokkar



Þetta vefsvæði byggir á Eplica