forlag með sál
Skip mitt braut við Afrikuströnd

Skip mitt braut við Afrikuströnd

– örlagasaga Fjólu Steinsdóttur Mileris og fjölskyldu hennar

Það má með sanni segja að líf Fjólu Steinsdóttur Mileris hafi verið viðburðaríkt og hefur hún lifað meira en margir. Nú býr hún ein í íbúð sinni í Reykjavík í hárri elli. Hér skyggnist Fjóla til baka með sonarsyni sínum og sviptir hulunni af gömlum minningum um ástir og örlög, sorgir og sigra.

Harðband

Sonarsonur Fjólu, Georg Davíð Mileris, skráði.

Fjóla var sautján ára Reykjavíkurmær þegar Litháinn ungi Vladimir sigraði hjarta hennar, eftir að hafa stungið sér til sunds af þýsku fraktskipi árið 1939 við upphaf seinni heimsstyrjaldar og synt til hafnar á Íslandi. Vladimir var ofurhugi og virtist hafa níu líf eins og kötturinn. Hann lenti í miklum mannraunum í stríðinu, lifði af Hekluslysið eftir að hafa verið á fleka í tíu daga í Atlantshafi og margoft bjargaðist hann úr miklum háska á elleftu stundu. Fjóla fylgdi honum út í örbirgð og óvissu til Bretlands og sigldu þau síðan ásamt þremur börnum sínum til Afríku þar sem skip þeirra strandaði. Í hinu fjarlæga landi hófu þau nýtt líf og stofnuðu heimili sem þau áttu í 45 ár, en oft dvaldi hugurinn „heima“.
Skip-mitt-vid-Afrikustr
Við leiðarlok vill Fjóla hvíla lúin bein á Íslandi, vitur og lífsreynd en sátt, þó afkomendur hennar og ættingjar séu eins og frækorn fífunnar; hjá Guði eða dreifð um víða veröld.





2. prentun komin í búðir.













Skip_mitt_myndir





Verð 5.990 kr. Netverð 2.999 kr.

Aukaflokkar



Þetta vefsvæði byggir á Eplica