forlag með sál
Rósaleppaprjón í nýju ljósi

Rósaleppaprjón í nýju ljósi

Helene Magnusson

Ljósmyndir Hélène og Skúli Magnússon (og fleiri)

Íleppar eða rósaleppar eru prjónuð innlegg sem notuð voru í sauðskinnsskó eða roðskó til þæginda og skrauts. Þessi bók heldur til haga þeirri gömlu prjónahefð og gefur hugmyndir um hvernig má hagnýta hana við nútímahönnun.

Kilja

Hér er farið yfir sögu hins forna íslenska rósaleppaprjóns og aðferðir við gerð íleppa.Íleppar eða rósaleppar eru prjónuð innlegg sem notuð voru í sauðskinnsskó eða roðskó til þæginda og skrauts.

Í bókinni er rakin saga rósaleppaprjónsins og sýndir ótal leppar sem til eru á söfnum á Íslandi. Þessi bók heldur til haga þeirri gömlu prjónahefð og gefur hugmyndir um hvernig má hagnýta hana við nútímahönnun.

Þar eru líka 27 uppskriftir að nýtískulegum fatnaði sem er hannaður út frá þessum gömlu fallegu mynstrum. Bak við verkið býr fagleg rannsókn á hinni gömlu hefð sem höfundurinn túlkar af mikilli hollustu og þróar á nýjan og ferskan hátt.

Bókin er einnig fáanleg á ensku og heitir þá Icelandic Color Knitting.

Verð 2.490 kr. Netverð 1.990 kr.

Aukaflokkar



Þetta vefsvæði byggir á Eplica