Valmynd.
Höfundur: Guðlaugur Arason
Kaupmannahöfn - ekki bara Strikið er einstaklega skemmtileg bók fyrir alla sem vilja skoða borgina við Sundið, hvort heldur sem er upp á eigin spýtur eða undir leiðsögn höfundarins, Guðlaugs Arasonar, sem er eftirsóttur leiðsögumaður íslenskra ferðamanna í Kaupmannahöfn á sumrin.
Kilja
Í bókinni er lýst tíu skemmtilegum gönguleiðum um borgina við sundið. Hverri gönguleið fylgir kort sem lýsir leiðinni og inn á þau eru merktir áhugaverðir viðkomustaðir. Guðlaugur Arason er þekktur fyrir einstaka frásagnargáfu og stórkostleg tök á íslenskri tungu.
Hér lýsir Guðlaugur tíu gönguleiðum um borgina, útskýrir heiti gatna, lýsir staðháttum, sögulegum byggingum og minnist á þekkta einstaklinga sem tengjast þeim. Hverri gönguleið fylgir kort sem lýsir leiðinni og inn á þau eru merktir spennandi viðkomustaðir. Í lok bókar eru bráðskemmtilegar frásagnir um merkisstaði á gönguleiðunum, forvitnilega atburði og fólk sem hefur sett svip á bæjarlífið, ekki síst Íslendinga sem hafa búið í Höfn.
Þessari nýju bók er létt og þægilegt að stinga í vasa eða bakpoka og auðvelt að fylgja leiðbeiningum á kortunum.
Leið nautsins:
Ráðhústorg - Hallarhólmi - Nýhöfn Vegalengd ca. 3 km Ráðhústorg - Ráðhúsið - H.C. Andersen Boulevard - Dantes Plads - Ny Vestergade - Þjóðminjasafnið - Töjhusgade - Töjhusmuseet - Bókasafnsgarðurinn - Kanselliet - Börsen - Kristjáns IV. brú - Hafnargata - Nýhöfn (skuggahliðin) - Heibergsgade - August Bournoville Passage - Charlottenburg - Kóngsins Nýjatorg - Nýhöfn - Síkjasigling.