forlag með sál
Gamla góða Kaupmannahöfn

Gamla góða Kaupmannahöfn

Guðlaugur Arason

Guðlaugur hefur búið í Kaupmannahöfn undanfarin ár og meðal annars leitt íslenska ferðalanga um söguslóðir. Guðlaugur er allra manna fróðastur um sögu okkar fornu höfuðborgar. Gamla góða Kaupmannahöfn er í senn ferðahandbók, skemmtirit og sagnfræði – ómissandi fyrir alla sem vilja skoða borgina við Sundið.

Kilja

Hér greinir hann frá 180 götum, flestum innan gömlu borgarveggjanna, og segir óborganlegar sögur af þekktum Íslendingum og dönsku hefðarfólki sem setti svip á samtíð sína og skringisögur sem vekja hlátur eða jafnvel hroll.

Allégade, 2000 Fredriksberg C

- Liggur meðfram Fredriksberg Have austanvert Það er erfitt að ganga framhjá Allégade þótt sú gata sé úti á Friðriksbergi og þar af leiðandi langt fyrir utan borgarveggina. Hingað ráfuðu oft íslenskir stúdentar á skemmtigöngum sínum þegar þeir áttu frí og vildu anda að sér fersku lofti.

Nr. 7 - 9. Lorry sem var kunnur skemmtistaður langt fram á síðustu öld. Þar var Lars Matthiesen með veitingahús fyrir miðja 19. öld. Lars var vel kunnur Íslendingum eins og sést á boðsbréfi sem Konráð Gíslason skrifaði Sigurði L. Jónassyni 1889. Það hefur ekki legið mjög illa á gamlingjanum Konráði þegar hann setti eftirfarandi línur á blað, þá orðin áttatíu og eins árs:

 

28. nóv. 1836 vorum við á ferð sex Íslendingar utan úr skógi. Þegar minnst varði, æpti einn upp og sagði: „Hver gefur gæsina?“ Þá svöruðu allir hinir í einu hljóði: „Lars Matthiesen gefur gæsina!“

Síðan var ferðinni snúið til Lars Matthiesen á Friðriksbergi. - En þegar „hætt var að snæða“ víkur Lars mér út í horn og segir: „Ekki er eg spámannlega vaxinn, Konráð? þó segir mér svo hugur um, að þú munir verða á lífi 24. nóv. 1886. Og ef svo fer, þá mundu mig um það, tetrið mitt, að reyna að bjóða honum Laurentio mínum „uppá“ einfaldan gæsasnæðing 28. nóv. að 50 árum liðnum, í minningu þeirrar gæsar, sem þú hefur snætt hjá mér í dag, 28. nóv 1836. Það getur verið, þú þekkir hann ekki enn, hann Sigurð litla. Hann er út á „voru landi“ Íslandi, og er í dag 9 vetra og 237 nátta gamall.“ „Vitur maður ertu, Lars Matthiesen,“ segi ég „og ekki skal þetta boð bregðast, ef eg má ráða, og nógur skal bjórinn verða.“

Þú sérð, bróðir, hvernig á stendur. Nú kemur til þinna kasta.

Konráð Gíslason

Verð 3.990 kr. Netverð 1.990 kr.

Aukaflokkar



Þetta vefsvæði byggir á Eplica