forlag með sál
Já ég þori, get og vil

Já ég þori, get og vil

Hildur Hákonardóttir

Höfundur: Hildur Hákonardóttir

Nú eru rúmlega þrjátíu ár liðin frá því mikill meirihluti kvenna tók sér frí heilan dag til að funda um stöðu sína í þjóðfélaginu. Atvinnulífið lamaðist. Hildur Hákonar segir hér frá kvennafrídeginum 1975 á stórskemmtilegan og áhugaverðan hátt. Þessi bók ætti að vera til á öllum heimilum!

Kilja

Fjöldi kvenna vann baki brotnu til að kvennafríið gæti orðið að veruleika. Vilborg Harðardóttir var þar lykilmanneskja, fremst meðal jafningja í Rauðsokkahreyfingunni og sem umsjónarmaður jafnréttissíðu Þjóðviljans.

Í þessari stórglæsilegu bók vefur Hildur Hákonardóttir saman þá þræði sem urðu uppistaðan í þessum heimsviðburði. Hún var sjálf í hringiðu atburðarásarinnar og rekur hér söguna frá sínum sjónarhóli auk þess að styðjast við blaðaskrif og einstaka myndasögu sem hún teiknaði á sama tíma. Helga Gerður Magnúsdóttir hannaði bókina sem er hreint listaverk.

 

Verð 2.990 kr. Netverð 1.490 kr.

Aukaflokkar



Þetta vefsvæði byggir á Eplica