forlag með sál
Njála lifandi komin

Njála lifandi komin

Jóhannes Eiríksson

Njála lifandi komin er á auðlesnu máli með gullfallegum ljósmyndum frá söguslóðunum. Jóhannes Eiríksson endursegir hér Njálu og tengir við söguslóðirnar með glæsilegum ljósmyndum. Efnið er kryddað með ljóðum eftir ýmsa þekkta höfunda. Jón Böðvarsson skrifaði eftirmála í bókina.

Harðband

Njála er ein af áhrifamestu og vinsælustu Íslendingasögunum. Hún þykir afburða vel skrifuð og mannlýsingar hennar einstakar. Í nær þúsund ár hafa Gunnar og Njáll, Hallgerður og Bergþóra lifað með þjóðinni og endurspeglað mannlega reisn og breyskleika.

Saman vekja nútímalegur texti og dramatískar ljósmyndir Njálu til lífs á nýrri öld og hrífa lesendur með sér á vit hinnar margslungnu og æsispennandi örlagasögu sem snertir streng í brjósti flestra Íslendinga.

Njála, lifandi komin, er ómissandi bók fyrir unnendur góðra sagna og ekki síst þá sem ferðast um Njáluslóðir.  


Vara ekki fáanleg

Aukaflokkar



Þetta vefsvæði byggir á Eplica