forlag með sál

Heilsa

1001 leið til að slaka á

Susannah Marriott

Þýtt og staðfært: Aðalheiður Ploder. 

Stjórnast líðan þín af streitu og álagi? 1001 heilræði fyrir fólk sem hefur engan tíma til að slaka á! Í bókinni eru stuttir, hvetjandi og uppbyggilegir kaflar sem gott er að grípa til. Bók sem lætur þér líða vel... þú átt það skilið.

Meira
1.999 kr.

10 árum yngri á 10 vikum

Þorbjörg Hafsteinsdóttir

Sykur, unnin matvæli, streita og aðgerðaleysi geta gert þig eldri en þú ert. Góðu fréttirnar eru hins vegar þær að einmitt hér ertu með lausnina í höndunum! Til þess að viðhalda æskufjöri sem lengst þarftu rétt mataræði, vítamín, steinefni, olíur og markvissa hreyfingu. Meira
3.999 kr.

9 leiðir til lífsorku

Þorbjörg Hafsteinsdóttir

Hér kynnir Þorbjörg Hafsteinsdóttir lífsorkuhringinn; 9 leiðir – jafnvægi, orku, hreyfingu, hugrekki, samhljóm, ástríðu, skýrleika, meðvitund og vakningu. Saman skapa leiðirnar þá tíundu sem er sjálf lífsorkan en með hana í farteskinu öðlumst við betra jafnvægi, ónæmiskerfi og hormónastarf auk þess sem við lærum að hemja hugann svo við getum sinnt betur markmiðum okkar og því hvernig við viljum raunverulega nota hið dýrmæta líf sem við eigum. Meira
2.999 kr.

Aftur í form - 10 vikna endurhæfing fyrir nýbakaðar mæður

Höfundur: Sally Lewis

Íslensk þýðing: María Hrönn Gunnarsdóttir

Hér er að finna fjölda góðra ráða til að komast í form eftir meðgöngu og fæðingu. Í bókinni er 10 vikna endurhæfingaráætlun, skipulögð af sérfræðingi, og miðast við að konan nái sínum fyrri andlega og líkamlega styrk sem allra fyrst.

Meira
990 kr.

Baráttan fyrir börnin - Reynslusaga móður af einhverfu

Karen Kristín Ralston

Karen Kristín er Bandaríkjamaður, búsett á Íslandi og tvö fjögurra barna hennar hafa verið greind með einhverfu. Baráttan fyrir börnin er persónuleg saga hennar og fjölskyldu hennar í baráttu þeirra við þennan erfiða og einstaklingsbundna sjúkdóm. Meira
1.990 kr.
 

Candida sveppasýking

Guðrún G. Bergmann

Sjúkdómseinkenni eru útskýrð, fjallað er um fæðusamsetningu, á hvaða tíma sólarhrings helstu líffæri okkar starfa og síðast en ekki síst er sagt frá áhrifaríkum lausnum til að vinna bug á sýkingunni. Meira
1.290 kr.

Endalaus hollusta

Clare Haworth-Maden

Næringarráðgjafar mæla með að við borðum að minnsta kosti fimm skammta af ávöxtum og grænmeti á dag. Það er ekki alltaf auðvelt, en ef við erum dugleg að drekka safa og þeytinga verður þetta leikur einn.

Meira
1.990 kr.

Frábær eftir fertugt

Hér er einkennum breytingaskeiðsins og líðan og heilsu kvenna á þessum tíma gerð góð skil á mannamáli, en það er mikilvægt fyrir konur að vera vel upplýstar og viðbúnar því að taka á móti þeim breytingum sem verða þá óhjákvæmilega. Meira
3.999 kr.

Fyrst ég gat hætt getur þú það líka

Valgeir Skagfjörð

Valgeir Skagfjörð hjálpar reykingafólki að taka þá stóru ákvörðun að drepa í fyrir fullt og allt. Fyrst ég gat hætt getur þú það líka er persónuleg og áhrifafarík bók fyrir alla þá sem vilja hætta að reykja og eru orðnir langþreyttir á skyndilausnum.

Meira
1.490 kr.

Heilsubók konunnar - alfræðirit um líkama og sál

Höfundur: Lesley Hickin

Íslensk þýðing: Erla Dóris Halldórsdóttir og Hildur Hermóðsdóttir.

Heilsubók konunnar - alfræðirit um líkama og sál, er fleytifull af hollráðum fyrir konur um hvernig má viðhalda hugarró, góðri heilsu og geislandi útliti í hraða nútímans. Bókin geymir víðtækan fróðleik um allt sem viðkemur líkama og sál. Efnið er ríkulega skreytt teikningum, töflum og ljósmyndum. Það er allt yfirfarið af íslenskum sérfræðingum.

Meira
1.950 kr.
 

Heilsulausnin, raunhæf markmið - varanlegur árangur

Árni Heiðar Ívarsson

Árni er einkaþjálfari oghefur hjálpað fjölmörgum einstaklingum til að ná frábærum árangri í heilsurækt. Heilsulausnin er aðferð sem heilbrigðisstéttir gefa bestu meðmæli. Reynslusögurnar í bókinni sanna undraverðan árangur. Markmiðin eru raunhæf og rétt eins og einkaþjálfari styður bókin við skjólstæðing sinn, hvetur hann og fræðir.

Meira
1.490 kr.

Hollt nesti heiman að

Hér eru á ferðinni um það bil 70 uppskriftir, hver annarri ljúffengari og hollari en að sama skapi einfaldar og nýstárlegar. Meira
1.990 kr.

Hreystin kemur innan frá

Höfundur: Maria Costantino

Íslensk þýðing: Þorvaldur Kristinsson 
 

Hreystin kemur innan frá leiðir lesendur á byrjunarreit og kennir okkur hvernig við getum hreinsað óæskileg efni úr líkamanum svo hann vinni betur úr fæðunni og auki brennsluna.

Meira
1.990 kr.

Japanskar konur hraustar og grannar

Naomi Moryama & William Doyle

Þýðandi: Þóra Sigurðardóttir. 

Fólkið í Japan lifir lengur en annars staðar. Konurnar eru grennri en í öðrum löndum og ótrúlega unglegar. Það er þó ekki bara japönskum erfðaeiginleikum að þakka heldur ekki síður mataræðinu, það er til dæmis sannað að Vesturlandabúar sem tileinka sér japanskt mataræði verða hraustari og aukakílóin hverfa eins og dögg fyrir sólu.

Meira
790 kr.

Mataræði - Handbók um hollustu

Michael Pollan


Gagnleg matarviskuráð frá Michael Pollan, margverðlaunuðum metsöluhöfundi og baráttumanni fyrir hollu mataræði. Það þarf ekki að vera flókið að borða, en nú til dags fáum við endalausar ráðleggingar um hvað er hollt og hvað óhollt og verðum fyrir bragðið rugluð í ríminu. Meira
1.290 kr.
 

Matur sem yngir og eflir

Þorbjörg Hafsteinsdóttir

Allt of margir eldast um aldur fram og þjást af kvillum sem má rekja beint til of mikillar neyslu sykurs og unninnar matvöru. Í þessari bók gefur Þorbjörg Hafsteinsdóttir fjölbreyttar, einfaldar og girnilegar uppskriftir að hollustufæði. Meira
2.999 kr.

Máttur athyglinnar

Guðni Gunnarsson

Hér beinir Guðni sjónum sínum að því hversu einfalt er að gera breytingar á lífi sínu og tilvist. Á innihaldsríkan en skýran hátt leiðir hann þig í gegnum sjö vikna verkefnavinnu sem umbyltir lífi allra sem henni fylgja. Bókin er notuð sem verkefnabók á námskeiðum Guðna, en hana getur þó hver sem er lesið og notað eftir eigin þörfum. Meira
2.999 kr.

Máttur viljans

Guðni Gunnarsson

Máttur viljans er bók sem getur virkjað kraftinn sem býr innra með þér. Meira
2.999 kr.

Ótuktin

Höfundur: Anna Pálína Árnadóttir

Ótuktin þaut beint á metsölulista þegar hún kom út vorið 2004 og hefur notið mikilla vinsælda síðan. Anna Pálína greindist með krabbamein 39 ára gömul. Samfara hefðbundinni krabbameinsmeðferð notfærði hún sér hugleiðslu og óhefðbundnar lækningar.

Meira
1.290 kr.

Safaríkt líf

Þorbjörg Hafsteinsdóttir

Girnilegir og gómsætir þeytingar af ýmsu tagi sem dekra við kroppinn og fríska húðina. Nóg er líka af grænum drykkjum sem styrkja ónæmiskerfið og auka brennslu. Suma safana er hægt að fá sér milli mála og aðrir koma hæglega í stað máltíðar. Njóttu – og líf þitt verður safaríkara! Meira
2.999 kr.
 

Slökun fyrir þig - Fjallgangan

Slökunardiskur með sjálfstyrkingu og róandi tónlist. Þessi diskur er tileinkaður öllum þeim sem vilja bæta líðan sína. Meira
2.500 kr.

Slökun fyrir þig - Fyrirgefningarmusterið

Slökunardiskur með sjálfstyrkingu og róandi tónlist. Þessi diskur er tileinkaður öllum þeim sem vilja bæta líðan sína. Meira
2.500 kr.

Slökun fyrir þig - Ströndin

Slökunardiskur með sjálfstyrkingu og róandi tónlist. Þessi diskur er tileinkaður öllum þeim sem vilja bæta líðan sína. Meira
2.500 kr.

Sofum betur

Vöknum endurnærð á hverjum morgni

52 stórfínar og aðgengilegar aðferðir sem leggja þér lið í baráttunni gegn viðvarandi svefnvanda. „Ég man að ég var svo alvarlega vansvefta þegar börnin mín voru á fyrsta ári að ég mundi tæpast hvað ég hét … næði ég að komast í gegnum daginn án þess að valda öðrum alvarlegum skaða var það mikill persónulegur sigur. Meira
2.790 kr.

Teygjur - teygjum okkur í betri líðan og hraustlegra útlit

Höfundur: Suzanne Martni

Teygjur eru lykillinn að heilbrigði. Þær auka liðleika líkamans minnka stress og halda okkur í betra formi. Í þessari bók eru áhrifaríkar teygjuæfingar frá toppi til táar sem hægt er að gera bæði heima, á vinnustað og í ræktinni. Teygjur er glæsileg og gagnleg bók eftir Suzanne Martin sem er þekktur líkamsræktarþjálfari í Bretlandi.

Meira
1.800 kr.
 

Uppeldi fyrir umhverfið

Susannah Marriott

Þýðendur: Gunnar Sigvaldason og Katrín Jakobsdóttir

Hagnýtar uppástungur um grænt uppeldi. Barninu líður betur og náttúran blómstrar. Með því að nota umhverfisvænar bleyjur, mildar snyrtivörur og hreinsiefni, endurnýta föt og húsgögn, njóta útivistar og fækka bílferðum stundum við uppeldi fyrir umhverfið.

Meira
1.490 kr.

Ætigarðurinn

Hildur Hákonardóttir

Ætigarðurinn – handbók grasnytjungsins hittir í mark því um þessar mundir er gríðarlegur áhugi fyrir ræktun og hollum lífsháttum. Bókin er ómissandi fyrir alla þá sem vilja rækta garðinn sinn og hlúa um leið að líkama og sál.

Meira
1.999 kr.

Aukaflokkar



Þetta vefsvæði byggir á Eplica