Valmynd.
Höfundur: Guðrún Jóhannsdóttir
Hollir, fljótlegir og freistandi réttir. Langar þig að breyta til og prófa nýjar uppskriftir? Í þessari bók eru 50 uppskriftir að hollum og næringarríkum mat fyrir önnum kafið fólk sem vill fjölbreytt mataræði án þess að það taki of langan tíma. Aftast í bókinni eru svo skemmtilegar tillögur að vikumatseðlum.
Kilja
Bókin er eftir Guðrúnu Jóhannsdóttur sem lengi hefur skrifað hina vinsælu pistla Til hnífs og skeiðar í Fréttablaðið. Hollustan er hér í fyrirrúmi ásamt vænni lúku af sköpunargleði og lögð áhersla á að eldamennskan taki ekki of langan tíma.