Valmynd.
Kilja
Hér mætast frönsk matarmenning eins og hún gerist best og nýstárleg notkun á fersku, íslensku hráefni. í þessu fallega, glænýja kveri er eitt af helstu leyndarmálum franskrar matreiðslu afhjúpað en það eru hinar girnilegu salatsósur – vínegrettur.
Bókin er lítill skrautmunur sem gaman er að gefa, öll litprentuð og bundin inn í glæra plastkápu. Undanfarin ár hefur íslensk matarhefð tekið miklum breytingum og nú þykir salat nauðsynlegt með hverri máltíð. Flotið góða hefur vikið fyrir hollum og auðmeltum olíum – sem er einmitt að finna í þessum gómsætu vínegrettum höfundar. Þar mætast frönsk matarmenning eins og hún gerist best og nýstárleg notkun á fersku, íslensku hráefni.
Hélène Magnússon flutti hingað til lands árið 1995 og nú finnst henni tími til kominn að Íslendingar eignist hlutdeild í þessum mikilvæga þætti franskrar matreiðslu.
Bókin er líka til á íslensku og þýsku.