forlag með sál
Spriklandi lax í boði veiðikokka

Spriklandi lax í boði veiðikokka

Í bókinni miðla kokkar nokkurra veiðihúsa af reynslu sinni og þekkingu og birta uppskriftir að sínum bestu laxréttum við glæsilegar ljósmyndir Lárusar Karls Ingasonar. Einnig er að finna margvíslegan fróðleik um laxveiðárnar, uppáhaldsflugur og veiðistaðistaði kokkanna auk þess sem nokkrar veiðisögur fá að fljóta með.

Harðband

Hér er fjallað um matreiðslu sem hæfir laxinum, konungi fiskanna. Bæði gefnar einfaldar uppskriftir þar sem ferskleikinn ræður ríkjum og ofulítið flóknari þar sem notaðar eru nýstárlegar kryddjurtir. Í bókinni eru líka frásgnir á léttum nótum og nokkur gullkorn um laxveiði setja svo punktinn yfir i-ið. Bjarni Brynjólfsson og Loftur Atli Eiríksson sáu um textagerð.

Verð 3.990 kr. Netverð 2.490 kr.

Aukaflokkar



Þetta vefsvæði byggir á Eplica