Valmynd.
Hér er á ferðinni frönsk útgáfa bókarinnar Leyndarmál franskrar salatsósu. Undanfarin ár hefur íslensk matarhefð tekið miklum breytingum og nú þykir salat nauðsynlegt með hverri máltíð. Flotið góða hefur vikið fyrir hollum og auðmeltum olíum – sem er einmitt að finna í þessum gómsætu vínegrettum höfundar.
Softcover
Hér mætast frönsk matarmenning eins og hún gerist best og nýstárleg notkun á fersku, íslensku hráefni.
í þessu fallega, glænýja kveri er eitt af helstu leyndarmálum franskrar matreiðslu afhjúpað en það eru hinar girnilegu salatsósur – vínegrettur. Bókin er lítill skrautmunur sem gaman er að gefa, öll litprentuð og bundin inn í glæra plastkápu.
Undanfarin ár hefur íslensk matarhefð tekið miklum breytingum og nú þykir salat nauðsynlegt með hverri máltíð. Flotið góða hefur vikið fyrir hollum og auðmeltum olíum – sem er einmitt að finna í þessum gómsætu vínegrettum höfundar. Þar mætast frönsk matarmenning eins og hún gerist best og nýstárleg notkun á fersku, íslensku hráefni.
Hélène Magnússon flutti hingað til lands árið 1995 og nú finnst henni tími til kominn að Íslendingar eignist hlutdeild í þessum mikilvæga þætti franskrar matreiðslu.