Valmynd.
Kilja
Ég hef lengi gengið með í maganum hugmyndina að sjónvarpsþáttum og bók um grill og það var síðan á einhverjum símafundinum hjá okkur Sigurði Gíslasyni að ég náði að plata hann í þetta verkefni með mér og síðan fylgdi Stebbi í kjölfarið. Með tvo af bestu kokkum landsins gat þetta ekki orðið annað en skemmtilegt og í sameiningu ákváðum við að hafa þetta einfalt og grilla bara það sem okkur þykir best!…Það er fátt skemmtilegra en að hittast í góðra vina hópi, börn og foreldrar, vinir og vandamenn og galdra fram grillveislu. Ég vona innilega að uppáhaldsréttir okkar félaganna eigi eftir að falla ykkur í geð.(Völundur Snær Völundarson, úr formála.)