forlag með sál
Sultur allt árið

Sultur allt árið

Ofurgirnileg og falleg bók um ýmiss konar sultur, kryddmauk, marmelaði, hlaup og sýróp.

Annað

Hér áður fyrr einskorðaðist sultugerð að mestu við haustið sem er uppskera berja og rabarbara.

Nú er öldin önnur og hér leiðir Sigurveig Káradóttir, matgæðingur og eigandi Matarkistunnar, okkur um heim sultugerðar þar sem hráefnið er fjölbreytt og hægt að sulta allan ársins hring. Henni verður allt úr öllu; hvort sem um er að ræða banana, gulrætur, gojiber, eða bláberin okkar góðu.

Í bókinni er ekki eingöngu að finna hinar hefðbundnu sultur heldur ýmislegt annað sem hentar nútímalegum og heilsusamlegum matarháttum.

Uppskriftirnar eru einfaldar og upplagðar til að kóróna aðalmáltíðina, brauðmetið eða kökuna. Einnig er sulta í fallegri krukku skemmtileg gjöf.


GOURMAND-World-Cookbook-Award




nestiskapaNETSigurveig Káradóttir er einnig einn af þremur höfundum að bókinni Hollt nesti heiman að.
Þar er að finna um það bil 70 uppskriftir sem eru hver annarri ljúffengari og hollari en að sama skapi einfaldar og nýstárlegar.



Verð 2.990 kr. Netverð 2.490 kr.

Aukaflokkar



Þetta vefsvæði byggir á Eplica