forlag með sál
Stóra bókin um Villibráð

Stóra bókin um Villibráð

Úlfar Finnbjörnsson

Sannkallað alfræðirit fyrir allt áhugafólk um nýtingu villibráðar, full af fróðleik og ómótstæðilegum sælkerauppskriftum.

Harðband


Hún er komin aftur, Stóra bókin um villibráð,
metsölubókin sem beðið hefur verið eftir.
Verið er að vinna í að koma henni í allar verslanir.




Stóra bókin um Villibráð
eftir Úlfar Finnbjörnsson.

Úlfar Finnbjörnsson er ástríðufullur veiðimaður sem hefur brennandi áhuga á að nýta bráðina sem best. Hér er að finna:

  • Sannkallað alfræðirit, 312 síður
  • Ómótstæðilegar sælkerauppskriftir
  • Aðgengilegar leiðbeiningar um verkun og meðferð villibráðar
  • Gullfallegar ljósmyndir


Úlfar hefur stundum verið nefndur villti kokkurinn, enda fer hann víða og stundar fjölbreytta veiðimennsku auk þess að vera matreiðslumeistari á heimsmælikvarða. Hann er þó sannkölluð fyrirmynd annarra veiðimanna og umgengst náttúruna af sannri virðingu.

Hér töfrar Úlfar fram ljúffenga veislurétti úr kjöti og innmat hreindýra, sjávarspendýra og fleiri fuglategunda sem veiða má á Íslandi. Hann fjallar um hvaðeina sem viðkemur frágangi á bráðinni allt frá því hún er felld; hvernig á að reyta, svíða, hamfletta, úrbeina, búa til kæfur, pylsur, súpur, soð og sósur auk þess að steikja og grilla bestu bitana.

Glæsilegar ljósmyndir eftir Karl Petersson prýða bókina, bæði af réttunum ásamt skýringarmyndum af helstu verkunaraðferðum. Teikningar eru eftir Jón Baldur Hlíðberg. Dominique Plédel Jónsson skrifar kafla um vín með villibráð.


"Allir veiðimenn þekkja töfra veiðanna, Þegar maður og náttúra verða eitt og allir veiðimenn vita að bráðin er einhver sá besti og hollasti matur sem völ er á. Spurningin er hins vegar sú hvernig best sé að nýta bráðina og matreiða. Ef einhver getur svarað þeirri spurningu svo vel sé er það matreiðslumaðurinn og veiðimaðurinn Úlfar Finnbjörnsson."

Sigmar B. Hauksson Formaður Skotveiðifélags Íslands





5_stjornur
Páll Baldvin Baldvinsson



Hér má sjá Úlfar kynna rétti úr bókinni í Íslandi í dag.
Ulfar_island_i_dag




Smelltu á myndina til að sjá myndir úr útgáfuhófi Úlfars ulfar2
Úlfar Finnbjörnsson undirbýr útgáfuhófið. Mynd: www.visir.is


Verð 9.900 kr. Netverð 7.900 kr.

Aukaflokkar



Þetta vefsvæði byggir á Eplica