Glæsileg bók með húsráðum sem bjarga málunum og gera lífið skemmtilegra.
Eldhúsið, þrifinn, garðurinn, þvotturinn, bíllinn - Marta Stjúart hvað?
Kitschfríður veit það!
Húsráðakver frú Kitschfríðar á heima á öllum betri heimilum enda agalega
gagnlegt.
Húsráðin hennar Kitschfríðar eru svo sanarlega ekkert grín þótt umbúðirnar verði að teljast frekar litríkar.
Meðal efnis: Matargerð, bakstur, fullkomin eggjasuða, steiking, sósur, vinnuhagræðing, karlmenn þurfa kjöt, nýtni
Fegrun, húð, hár, mjúkar og kvenlegar hendur, neglur, varir, sparnaðarráð, nælonsokkabuxur, heilsa, höfuðverkur –
Eiginmenn, hversdagsrómantík í boði eiginkonunnar , hrjótandi heimilisfeður –
Börn, – Gæludýr, – Garðurinn, – Ferðalög, – Handavinna, –
Karlmannsverk, smíðar. málningarvinna, tækni, bílar, meira og betra bensín fyrir aurinn –
Þrif, gluggar, ofninn, baðherbergið, skínandi hvítt baðker, gólf, –
Þvottur, blettir
– Hagsýni, góður innkaupalisti sparar fé, sparnaðarboðorðin níu í matreiðslu, rafmagnssparnaður, fyrir barnafólkið –
Jól, jólaskreytingar , forljótar jólagjafir en fagurt bros á vör, laumuaðhaldsráð frú Kitschfríðar, agalega góð áramótaheit

Úr inngangi bókarinnar:Ég
hef nú um árabil skrifað húsráðapistla í tímaritið Vikuna við góðan
orðstír og hef á þeim tíma komist að því að agaleg fákunnátta og almennt
smekkleysi er því miður orðið allsráðandi meðal íslenskra húsmæðra. Þó
að greinaskrif undirritaðrar hafi vissulega lagt lóð á vogarskálarnar í
menntun og uppfræðslu þessarar stéttar, dugir það skammt þegar lyfta
þarf eins gasalegu grettistaki og raun ber vitni. Ekki ætla ég að
leggjast í neina flókna samfélagsrýni til að skýra þessa hrikalegu
afturför frá því í denn – látum einhverja agalega vel menntaða karlmenn
um það, stelpur. Við þurfum að einbeita okkur að því að ná upp færni
mæðra okkar og formæðra í húshaldinu og umhirðu fjölskyldunnar.
Kveðja, Kitschfríður.
Smelltu hér til að sjá viðtal Mörtu Maríu
(Smartland Mörtu Maríu á mbl.is) við Kitschfríði