forlag með sál

Sjálfsrækt

1001 leið til að slaka á

Susannah Marriott

Þýtt og staðfært: Aðalheiður Ploder. 

Stjórnast líðan þín af streitu og álagi? 1001 heilræði fyrir fólk sem hefur engan tíma til að slaka á! Í bókinni eru stuttir, hvetjandi og uppbyggilegir kaflar sem gott er að grípa til. Bók sem lætur þér líða vel... þú átt það skilið.

Meira
1.999 kr.

101 hollráð

Victoria Moran

Íslensk þýðing: Anna María Hilmarsdóttir

Andleg uppbygging til að grennast í eitt skipti fyrir öll. Lærðu að sættast við sjálfa þig, síðan vigtina, spegilinn og lífið sjálft. Ef þú vilt læra að borða hollari mat og huga betur að eigin líkama eða vilt léttast í eitt skipti fyrir öll, er mögulegt að þessi bók geti hjálpað þér.

Meira
1.490 kr.

10 árum yngri á 10 vikum

Þorbjörg Hafsteinsdóttir

Sykur, unnin matvæli, streita og aðgerðaleysi geta gert þig eldri en þú ert. Góðu fréttirnar eru hins vegar þær að einmitt hér ertu með lausnina í höndunum! Til þess að viðhalda æskufjöri sem lengst þarftu rétt mataræði, vítamín, steinefni, olíur og markvissa hreyfingu. Meira
3.999 kr.

9 leiðir til lífsorku

Þorbjörg Hafsteinsdóttir

Hér kynnir Þorbjörg Hafsteinsdóttir lífsorkuhringinn; 9 leiðir – jafnvægi, orku, hreyfingu, hugrekki, samhljóm, ástríðu, skýrleika, meðvitund og vakningu. Saman skapa leiðirnar þá tíundu sem er sjálf lífsorkan en með hana í farteskinu öðlumst við betra jafnvægi, ónæmiskerfi og hormónastarf auk þess sem við lærum að hemja hugann svo við getum sinnt betur markmiðum okkar og því hvernig við viljum raunverulega nota hið dýrmæta líf sem við eigum. Meira
2.999 kr.

Að elska það sem er

Byron Katie

Vegna fjölda fyrirspurna er þessi vinsæla bók nú komin aftur á prent. Að elska það sem er bendir á árangursríka aðferð við að hreinsa til í eigin huga, losa sig við spennu og njóta lífsins eins og það mætir okkur á hverjum degi. Meira
1.990 kr.
 

Að finna hamingjuna

Barbara Berger

Í hverju felst hin eftirsótta hamingja sem við erum öll að leita að og hvað þurfum við að gera – eða ekki gera – til að öðlast hana? „Ef þú getur skapað þér óhamingju með hugsunum þá geta þær að sama skapi vakið með þér hamingju.“ Meira
2.390 kr.

Aðgát skal höfð í nærveru sálar

Orð geta bæði sært og glatt, því skal aðgát höfð í nærveru sálar. Með uppbyggilegum orðum er hægt að hjálpa fólki til að ná tökum á tilverunni – það gerir séra Solveig Lára einmitt í starfi sínu og því miðlar hún hér til allra sem vilja nýta sér þekkingu hennar og reynslu. Meira
999 kr.

Að láta lífið rætast

Hlín Agnarsdóttir

Þetta er trúnaðarbréf Hlínar Agnarsdóttur til lesenda. Á opinskáan og einlægan hátt segir hún frá sextán ára sambúð með manni sem glímdi við alkóhólisma öll helstu manndómsárin og dó langt fyrir aldur fram úr krabbameini.

Þessi áhrifaríka saga um meðvirkni var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna 2003.

Meira
1.290 kr.

Aftur í form - 10 vikna endurhæfing fyrir nýbakaðar mæður

Höfundur: Sally Lewis

Íslensk þýðing: María Hrönn Gunnarsdóttir

Hér er að finna fjölda góðra ráða til að komast í form eftir meðgöngu og fæðingu. Í bókinni er 10 vikna endurhæfingaráætlun, skipulögð af sérfræðingi, og miðast við að konan nái sínum fyrri andlega og líkamlega styrk sem allra fyrst.

Meira
990 kr.

Allra besta gjöfin

Jim Stovall

Endrum og sinnum færðu í hendurnar svo sérstaka bók að þér finnst þú verða að deila henni með öllum sem þú þekkir. Þetta er slík bók. ALLRA BESTA GJÖFIN fjallar um hvernig uppgötva má tilgang lífsins með því að endurmeta gildi sín og samskipti við aðra. Meira
1.790 kr.
 

Borða, biðja, elska

Elizabeth Gilbert


Borða, biðja, elska - endurprentun 2010 með bíómyndakápu
Meira
999 kr.

Ég get það

Hvernig hægt er að nota staðfestingar til að breyta lífi sínu

Allt sem við hugsum er stanslaus straumur staðfestinga. Við notum þær hvert augnablik meðvitað eða ómeðvitað. Engin manneskja, staður eða hlutur ræður yfir hugsunum ykkar, aðeins þið – og reyndar eru þær það eina sem þið hafið vald yfir. Að sama skapi hafið þið enga stjórn á hugsunum annarra. Hugsunin er öflug, þið getið öðlast stjórn á ykkar eigin hugsunum. Það sem þið ákveðið að hugsa er einmitt það sem lífið veitir ykkur.
Meira
2.999 kr.

Fegraðu líf þitt

Victoria Moran

Íslensk þýðing: Þóra Sigríður Ingólfsdóttir

Í bókinni er að finna leiðbeiningar um hvernig hægt er að fá það besta út úr lífinu þrátt fyrir annríki nútímans. Hún er sérstaklega skrifuð fyrir konur og í henni eru sjötíu kaflar sem hver og einn afhjúpar leyndarmál og leiðbeiningar til að finna hina vandfundnu leið til fullnægjandi lífs.

Meira
1.490 kr.

Ferðalagið að kjarna sjálfsins

Maxine Gaudio

Maxine Gaudio býr og starfar bæði í Reykjavík og Greenwich Conneticut. Hér segir "Max" frá lífi sínu á opinskáan og frjálslegan hátt svo það birtist okkur sem dæmisaga um hvernig hægt er að vinna sig út úr erfiðleikum og standa uppi sem sigurvegari. Max er velþekkt í heimalandi sínu og nú einnig hér, enda hefur hún haldið fjölda uppbyggjandi fyrirlestra í fyrirtækjum. Meira
2.500 kr.

FISKUR! fyrir lífið

Stephen Lundin, Harry Paul og John Christensen

Milljónir manna hafa notfært sér hugmyndafræði bókarinnar FISKUR! til að auka vinnugleði og bæta starfsárangur. Meira
990 kr.
 

FISKUR! - innbundin

Stephen Lundin, Harry Paul og John Christensen

Íslensk þýðing: Sigríður Á. Ásgrímsdóttir

Bók sem kveikir neistann að starfsgleði og vellíðan. Höfundarnir, Stephen C. Lundin, Harry Paul og John Christensen, fengu hugmynd að bókinni þegar þeir kynntust í hinni feikivinsælu fiskbúð Pike Place í Seattle, Kanada. Í bókinni taka þeir á helstu vandamálum í stjórnun og starfsmannahaldi, svo sem starfsleiða og kulnun í starfi, og ýta undir bjartsýni og vinnugleði.

Meira
2.150 kr.

Fleiri skyndibitar fyrir sálina

Barbara Berger

Íslensk þýðing: Ragnheiður Margrét Guðmundsdóttir

Finndu mátt þinn og megin! Fyrri bók Barböru Berger, Skyndibitar fyrir sálina, sló rækilega í gegn og var á metsölulista mánuðum saman. Í þessari bók bregst höfundi ekki bogalistin og bendir á fleiri áhrifaríkar leiðir til að bæta líf sitt og njóta þess til hins ýtrasta.

Meira
1.290 kr.

Fyrst ég gat hætt getur þú það líka

Valgeir Skagfjörð

Valgeir Skagfjörð hjálpar reykingafólki að taka þá stóru ákvörðun að drepa í fyrir fullt og allt. Fyrst ég gat hætt getur þú það líka er persónuleg og áhrifafarík bók fyrir alla þá sem vilja hætta að reykja og eru orðnir langþreyttir á skyndilausnum.

Meira
1.490 kr.

Heilsulausnin, raunhæf markmið - varanlegur árangur

Árni Heiðar Ívarsson

Árni er einkaþjálfari oghefur hjálpað fjölmörgum einstaklingum til að ná frábærum árangri í heilsurækt. Heilsulausnin er aðferð sem heilbrigðisstéttir gefa bestu meðmæli. Reynslusögurnar í bókinni sanna undraverðan árangur. Markmiðin eru raunhæf og rétt eins og einkaþjálfari styður bókin við skjólstæðing sinn, hvetur hann og fræðir.

Meira
1.490 kr.

Heimkoman

John Bradshaw

Það er nauðsynlegt að sættast við barnið í sér, en til þess að svo geti orðið þurfum við að horfast í augu við þroskaferilinn, gera upp fortíðina og finna okkar sanna sjálf. Þessu má líkja við goðsagnir og ævintýri þar sem heimkoman er stórbrotinn viðburð og hinum týnda er fagnað.

Meira
1.490 kr.
 

Hið þögla stríð

Höfundur: Svava Jónsdóttir

Í þessari bók er að finna viðtöl við fólk sem hefur orðið fyrir einelti; einnig er talað við gerendur, aðstandendur og fagfólk sem styður við bakið á þeim sem vilja þiggja aðstoð og vinna sig út þeirri miklu vanlíðan sem einelti getur valdið.

 

Meira
990 kr.

Horfin inn í heim átröskunar

Höfundar: Ásrún Eva Harðardóttir og Þórdís Rúnarsdóttir

Hér er athyglisverð umfjöllun og greining á einum banvænasta geðsjúkdómi nútímans. Höfundarnir berjast gegn fordómum og gefa mynd af vandanum eins og hann er í raun og veru. Mest er þó um verð sú von sem þær glæða með lesandanum.

Meira
1.290 kr.

Hreystin kemur innan frá

Höfundur: Maria Costantino

Íslensk þýðing: Þorvaldur Kristinsson 
 

Hreystin kemur innan frá leiðir lesendur á byrjunarreit og kennir okkur hvernig við getum hreinsað óæskileg efni úr líkamanum svo hann vinni betur úr fæðunni og auki brennsluna.

Meira
1.990 kr.

Hugmyndabók

Fredrik Härén

Höfundur: Fredrik Härén

Íslensk þýðing: Haraldur Jónsson

Þetta var góð hugmynd – skrifaðu hana niður! Þessi bók er byggð á þeirri forsendu að góðar hugmyndir fæðist ekki af sjálfu sér; það verður að lokka þær út. Innblástur og brennandi áhugi eru tvær pottþéttar aðferðir til að draga þær fram í dagsljósið.

Meira
2.190 kr.

Hugræn tækni og andlegu lögmálin tíu

Barbara Berger

Bækur Barböru Berger, Skyndibitar fyrir sálina og Fleiri skyndibitar fyrir sálina hafa notið gífurlegra vinsælda um allan heim. Hugmyndafræðin á bak við þær er byggð á tíu andlegum lögmálum sem við getum tileinkað okkur og náð undraverðum árangri á einfaldan hátt.

Meira
990 kr.
 

Jesús og Búdda - sami boðskapurinn

Jesús og Búdda. Hverjir voru þessir menn? Hvaðan komu þeir og hvað gerðu þeir? Í þessari bók mun ýmislegt koma lesandanum á óvart. Þrátt fyrir að þá skilji að fimm hundruð ár í tíma og þrjú þúsund mílur í rúmi eru ótrúlega margar hliðstæður í lífi þeirra og starfi. Meira
1.490 kr.

Konur geta breytt heiminum - með nýjum lífsstíl

Guðrún G. Bergmann

Guðrún er frumkvöðull í umhverfisvænni ferðaþjónustu og vinnu að vottun fyrirtækja og sveitarfélaga. Í þessari bók hvetur hún konur til að vinna saman og taka upp grænan lífsstíl.

Meira
1.990 kr.

Konur sem hugsa um of

Höfundur: Susan Nolen-Hoeksema

Íslensk þýðing: Sigurður Hróarsson

Liggurðu andvaka á nóttunni altekin af áhyggjum af börnunum, makanum eða fjölskyldunni? Veltirðu sí og æ fyrir þér hvernig þú gætir staðið þig betur í skólanum eða vinnunni? Hefurðu sífelldar áhyggjur af fjárhagnum, útliti þínu eða heilsufari?

Meira
1.850 kr.

Kyrrðin talar

Eckhart Tolle

Íslensk þýðing: Vésteinn Lúðvíksson. 

Fyrsta bók Eckharts Tolle, Mátturinn í núinu, fór sigurför um heiminn. Kyrrðin talar er ekki síðri, stutt og hnitmiðuð. Í henni nálgast hann viðfangsefni sín frá nýrri hlið. Þetta er bók sem vekur til umhugsunar og hreyfir við manni.

Meira
1.290 kr.

Kærleikskorn

Guðrún G. Bergmann

Kærleikskornin eru hér í nýrri útgáfu en frá því þau komu fyrst út hafa þau selst í meira en 5000 eintökum. Deildu kærleikskornunum með sem flestum í kringum þig því þau henta við öll tækifæri. Meira
2.000 kr.
 

Legend

Fiann Paul

Legend is Fiann's first book combining his photography and writing. It focuses on personal growth and incorporates the experience and inspiration he gained from living and working in the Himalayas.

Meira
1.490 kr.

Leyndarmálið / The Secret

Rhonda Byrne

Allt sem gerist í lífinu löðum við að okkur. Ef við náum að stilla tilveruna og það sem við viljum öðlast á sömu tíðni, getum við kallað til okkar betra líf, andlegt og veraldlegt. Þetta er sjálft Leyndarmálið – það er falið innra með hverjum og einum og möguleikarnir eru endalausir.

Meira
999 kr.

Lífsreglurnar fjórar

Don Miguel Ruiz

„Ef þessi bók breytir ekki lífi þínu, mun hún svo sannarlega bæta það og hjálpa þér að losna við gremju, eigingirni og önnur mein." - Páll Óskar, tónlistarmaður
Bók sem farið hefur sigurför um heiminn. Lífsspeki Tolteka-indjána er aldagömul en höfðar enn til fólks því hún byggir á klassískum gildum. Holl lesning fyrir þá sem vilja bæta sig og lífsgæði sín.


Íslensk þýðing: Birgitta Jónsdóttir

Meira
1.990 kr.

Máttur athyglinnar

Guðni Gunnarsson

Hér beinir Guðni sjónum sínum að því hversu einfalt er að gera breytingar á lífi sínu og tilvist. Á innihaldsríkan en skýran hátt leiðir hann þig í gegnum sjö vikna verkefnavinnu sem umbyltir lífi allra sem henni fylgja. Bókin er notuð sem verkefnabók á námskeiðum Guðna, en hana getur þó hver sem er lesið og notað eftir eigin þörfum. Meira
2.999 kr.

Máttur viljans

Guðni Gunnarsson

Máttur viljans er bók sem getur virkjað kraftinn sem býr innra með þér. Meira
2.999 kr.
 

Máttur viljans, hljóðbók

Guðni Gunnarsson

Máttur viljans getur virkjað kraftinn sem býr innra með þér. Meira
2.999 kr.

Móti hækkandi sól

Oft er nauðsynlegt staldra við á lífsleiðinni og finna fótfestu í lífinu á ný, ekki síst eftir áföll. Hér leggur Árelía Eydís upp með kenningar um von og heppni og bendir á leiðir tilrækta sjálfan sig. Meira
2.390 kr.

Queer eye for the straight guy

Höfundar: Ted Allen, Kyan Douglas, Thom Filicia, Carson Kressley og Jai Rodriguez

Íslensk þýðing: Gísli Rúnar Jónsson

Í þessari skemmtilegu og fróðlegu handbók má finna öll helstu ráð sem strákarnir úr sjónvarpsþáttunum Queer Eye for the Straight Guy veita.

Meira
1.290 kr.

Rauðhettuklúbburinn táp og fjör eftir fimmtugt

Höfundur: Sue Ellen Cooper

Íslensk þýðing: Súsanna Svavarsdóttir

Margar konur líta svo á að lífinu sé að verða lokið eftir fimmtugt. Sue Ellen Cooper er annarrar skoðunar. Hún ákvað að fimmtugasti afmælisdagurinn væri sérstakt fagnaðarefni og keypti sér rauðan hatt í tilefni dagsins.

Meira
890 kr.

Síðasti fyrirlesturinn

Höfundur: Randy Pausch með aðstoð Jeffrey Zaslow

Þýðandi: Ólöf Pétursdóttir

Þegar Randy Pausch, 46 ára prófessor í tölvunarfræðum við Carnegie Mellon háskóla, var beðinn að tala um faglega vegferð sína hafði hann nýlega fengið að vita að hann ætti aðeins fáa mánuði eftir ólifaða. Útkoman var Síðasti fyrirlesturinn, sem fjallar um mikilvægi þess að stefna að ákveðnu marki.

Meira
999 kr.
 

Skyndibitar fyrir sálina

Barbara Berger

Þýðandi: Ragnheiður Margrét Guðmundsdóttir

Við erum það sem við hugsum. Hugsanir og orð eru máttug. Við getum breytt lífinu til hins betra með því að þjálfa huga okkar og vanda samskipti við aðra. Þetta er bók um mátt hugans. Í hverjum kafla eru hagnýtar aðferðir til að ná betri tökum á lífinu.

Meira
1.290 kr.

Slökun fyrir þig - Fjallgangan

Slökunardiskur með sjálfstyrkingu og róandi tónlist. Þessi diskur er tileinkaður öllum þeim sem vilja bæta líðan sína. Meira
2.500 kr.

Slökun fyrir þig - Fyrirgefningarmusterið

Slökunardiskur með sjálfstyrkingu og róandi tónlist. Þessi diskur er tileinkaður öllum þeim sem vilja bæta líðan sína. Meira
2.500 kr.

Slökun fyrir þig - Ströndin

Slökunardiskur með sjálfstyrkingu og róandi tónlist. Þessi diskur er tileinkaður öllum þeim sem vilja bæta líðan sína. Meira
2.500 kr.

Sofum betur

Vöknum endurnærð á hverjum morgni

52 stórfínar og aðgengilegar aðferðir sem leggja þér lið í baráttunni gegn viðvarandi svefnvanda. „Ég man að ég var svo alvarlega vansvefta þegar börnin mín voru á fyrsta ári að ég mundi tæpast hvað ég hét … næði ég að komast í gegnum daginn án þess að valda öðrum alvarlegum skaða var það mikill persónulegur sigur. Meira
2.790 kr.
 

Stelpa stattu á þínu

Höfundur: Tricia Kreitman

Velgengni byggist á því að vera fær um að láta skoðanir sínar í ljósi og þora að segja nei þegar manni sýnist svo. Stelpur eru sjaldan hvattar til að þróa þessa hæfileika í uppvextinum og eru jafnvel sakaðar um mont eða frekju ef þær standa fast á sínu.

Meira
690 kr.

Talað út um lífið og tilveruna

Höfundur: Jónína Leósdóttir

Í Talað út um lífið og tilveruna fjallar Jónína Leósdóttir í léttum dúr um ýmsar hliðar mannlegra samskipta. Hún lýsir aðstæðum sem flest nútímafólk þekkir, segir frá eigin reynslu á hispurslausan hátt og gerir óspart grín að sjálfri sér. Samt er alvara lífsins aldrei langt undan.  

Meira
990 kr.

Um hjartað liggur leið: leiðsögn um fyrirheit og hættur andlegs lífs

Höfundur: Jack Kornfield

Þýðandi: Sigurður Skúlason

Frábær bók um andlega iðkun. Höfundurinn hvetur fólk til að fylgja leið hjartans, losa sig við neikvæðar hugsanir og rækta kærleikann. Andlegt líf fjallar ekki um það að vita mikið, heldur elska mikið, segir höfundurinn, Jack Kornfield, sem hvetur fólk til að rækta andann, stunda hugleiðslu og rækta með sér jákvæðar hugsanir.

Meira
1.850 kr.

Um hjartað liggur leið – Leiðsögn um fyrirheit og hættur andlegs lífs

Höfundur: Jack Kornfield

Frábær hljóðbók um andlega iðkun. Höfundurinn hvetur fólk til að fylgja leið hjartans, losa sig við neikvæðar hugsanir og rækta kærleikann. Andlegt líf fjallar ekki um það að vita mikið, heldur elska mikið, segir höfundurinn, Jack Kornfield, sem hvetur fólk til að rækta andann, stunda hugleiðslu og rækta með sér jákvæðar hugsanir.

Meira
2.490 kr.

Vatnið og hin duldu skilaboð þess

Höfundur: Masaru Emoto

Eftir áralangar rannsóknir hefur japanski vísindamaðurinn Masaru Emoto fundið út að ekki einungis náttúruöflin hafa áhrif á eiginleika vatnsins heldur líka allt það sem mannfólkið segir og gerir. Emoto byggir tilraunir sínar á myndum sem hann tekur af kristöllum í frosnu vatni við ólíkar aðstæður. Kristallarnir taka sláandi breytingum og styðja þá skoðun að allt líf byggist á mismunandi tíðni bylgjuhreyfinga.

Meira
1.490 kr.
 

Aukaflokkar



Þetta vefsvæði byggir á Eplica