Valmynd.
Höfundar: Ásrún Eva Harðardóttir og Þórdís Rúnarsdóttir
Hér er athyglisverð umfjöllun og greining á einum banvænasta geðsjúkdómi nútímans. Höfundarnir berjast gegn fordómum og gefa mynd af vandanum eins og hann er í raun og veru. Mest er þó um verð sú von sem þær glæða með lesandanum.
Kilja
Ásrún Eva Harðardóttir er ung kona sem hvarf inn í heim átröskunar þegar hún var níu ára gömul. Í 13 ár lifði hún undir oki brenglaðrar sjálfsmyndar sem kostaði hana nærri því lífið. Hér deilir hún með okkur reynslu sinni sem er bæði sláandi en gefandi lesning, jafnt fyrir þá sem þjást af átröskun og aðra sem vilja vita meira um sjúkdóminn sem oft getur verið falinn.
Þórdís Rúnarsdóttir hefur lokið doktorsnámi í sálfræði í San Francisco þar sem hún sérhæfði sig í átröskunarsjúkdómum og starfar á átröskunardeild Kaiser Permanente sjúkrahússins. Hún er annar höfundur bókarinnar og fjallar um sjúkdóminn frá faglegu sjónarhorni.
Saman berjast þær gegn fordómum og lýsa vandanum eins og hann er í raun og veru. Þær glæða líka von með lesandanum, enda er Ásrún Eva lifandi sönnun þess að það er leið til baka og hægt að losna úr viðjum átröskunar.
Allt of algengt er að stúlkur og ungar konur stundi megrunarkúra til að mæta endalausum kröfum tískunnar um að vera ofurgrannar. Í einhverjum tilfellum getur það leitt til átröskunar og nauðsynlegt er að vera á varðbergi gagnvart þessum háskalega sjúkdómi