Valmynd.
Höfundur: Svava Jónsdóttir
Í þessari bók er að finna viðtöl við fólk sem hefur orðið fyrir einelti; einnig er talað við gerendur, aðstandendur og fagfólk sem styður við bakið á þeim sem vilja þiggja aðstoð og vinna sig út þeirri miklu vanlíðan sem einelti getur valdið.
Harðband
Hið þögla stríð er framlag í baráttunni gegn einelti, því með reynslusögum sínum gefa viðmælendur öðrum von og styrk til að sigrast á því stjórnlausa ofbeldi sem einelti er og afhjúpa þetta leyndarmál sem er svartur blettur á íslensku samfélagi.
- Hvernig líður barni eða fullorðnum sem fær kuldalegar athugasemdir á hverjum degi frá skólafélögum eða samstarfsfólki?
- Hvernig líður þeim sem meiða og/eða græta aðra?
- Hvers vegna sameinast fólk í þögult bandalag gagnvart öðrum?
- Hvers vegna standa þolendur bara ekki upp og berjast?
Regnbogabörn leiðbeindu við vinnslu þessarar bókar, með faglegri ráðgjöf og hvatningu. Hluti söluverðs rennur til samtaka þeirra.