Valmynd.
John Bradshaw
Það er nauðsynlegt að sættast við barnið í sér, en til þess að svo geti orðið þurfum við að horfast í augu við þroskaferilinn, gera upp fortíðina og finna okkar sanna sjálf. Þessu má líkja við goðsagnir og ævintýri þar sem heimkoman er stórbrotinn viðburð og hinum týnda er fagnað.
Kilja
Hér er fjallað um hvernig við getum alið okkur upp á nýjan hátt, losað okkur við reiðina og hugsanir sem brjóta okkur niður, byggt upp heilbrigt sjálfstraust, treyst sambönd og áttað okkur á hvert við viljum stefna.
Metsöluhöfundurinn John Bradshaw hefur breytt lífi fjölmargra með kenningum sínum um hvernig við getum endurheimt barnið í okkur og öðlast ró. Oft hefur æskan neikvæð áhrif á sálarlífið og því náum við ekki að lifa heil í nútíðinni.