forlag með sál
Töfrar 1-2-3

Töfrar 1-2-3

Höfundur: Thomas W. Phelan

Íslensk þýðing: Bryndís Víglundsdóttir

Hver ræður á heimilinu? Ráðum við ferðinni eða látum við börnin stjórna okkur? Ekki er alltaf auðvelt að taka á hegðunarvanda barna, halda stillingu og sýna sanngirni. Góð ráð eru því vel þegin, ekki síst ef þau krefjast þess ekki að við séum snillingar eða sálfræðingar.

Kilja

Þessi bók er full af góðum einföldum ráðum:
Hvernig er hægt að fá börn til að HÆTTA þegar þau ganga of langt – ef þau til dæmis suða, heimta eða fá reiðiköst? Hvernig getum við fengið börn til að BYRJA á því sem þau eiga að gera – læra heima, taka saman dótið sitt o.s.frv.? Hvernig getum við forðast tala-sannfæra-þrátta-rífast ferlið?
Hvernig á að bregðast við óþekkt á almannafæri?
Hvernig geta foreldrar og kennarar haldið uppi sanngjörnum aga?
Hvernig getum við eflt sjálfstraust barna?

Hér er fjallað af ást og skilningi um það erfiða verkefni að ala upp börn og bent á skynsamlega leið fyrir uppalendur  2ja – 12 ára barna til að losna við að skammast, þræta eða beita valdi. Einnig er sýnt fram á að þögn getur verið áhrifaríkari en þúsund orð.
Verð 2.490 kr. Netverð 1.990 kr.

Aukaflokkar



Þetta vefsvæði byggir á Eplica