Valmynd.
Höfundur: Tricia Kreitman
Velgengni byggist á því að vera fær um að láta skoðanir sínar í ljósi og þora að segja nei þegar manni sýnist svo. Stelpur eru sjaldan hvattar til að þróa þessa hæfileika í uppvextinum og eru jafnvel sakaðar um mont eða frekju ef þær standa fast á sínu.
Kilja
Hér er loksins komin bókin sem hefur vantað í íslenska bókaflóru. Í henni eru gagnleg ráð um hvernig stelpur geta styrkt sjálfsmynd sína, staðið keikar gagnvart strákum og sagt hug sinn á hverju sem dynur. Hún geymir einnig leiðbeiningar um hvar best er að leita aðstoðar ef nauðsyn krefur og er bráðnauðsynleg fyrir foreldra og alla þá sem vilja styðja við bakið á ungum stúlkum í lífsbaráttunni.