forlag með sál
25 gönguleiðir á höfuðborgarsvæðinu

25 gönguleiðir á höfuðborgarsvæðinu

Reynir Ingibjartsson

25 hringleiðir á höfuðborgarsvæðinu. Allar auðfarnar og tekur oftast ekki meira en eina klukkustund að ganga þær. Í flestum tilvikum er hægt að velja á milli hvort genginn er stærri eða minni hringur. Kort og leiðbeiningar fylgja sérhverjum gönguhring, ásamt leiðarlýsingu og umfjöllun um það sem fyrir augu ber.

Kilja


Bókin hefur að geyma 25 hringleiðir á höfuðborgarsvæðinu. Allar auðfarnar og tekur oftast ekki meira en eina klukkustund að ganga þær. Í flestum tilvikum er hægt að velja á milli hvort genginn er stærri eða minni hringur.

Leiðirnar er flestar í útjaðri borgarinnar, við sjávarsíðuna, í dalverpum, meðfram ám og vötnum í friðsælum vinjum náttúrunnar. Tilvaldir göngutúrar sem hægt er að skreppa í þegar myndast óvænt glufa í þungan og gráan hvunndaginn eða til að glæða helgarnar lífi og fersku lofti. Það er ótrúlegt hve víða er að finna leynistaði sem eru fagrir og friðsælir.

Fáir þekkja svæðið betur en Reynir Ingibjartsson, sem hefur markað leiðirnar og skrifað um þær margvíslegan fróðleik varðandi minjar og sögustaði. Kort og leiðbeiningar fylgja sérhverjum gönguhring, ásamt leiðarlýsingu og umfjöllun um það sem fyrir augu ber.

Bókin er 160 blaðsíður í mjúku bandi með gormi og kemur einnig út á ensku.



Gonguleidirnar







Smelltu á kápurnar til að lesa meira um bækur Reynis
Gonguleidir_Reykjanes   25_gonguleidir_a_Hvalfjardarsvaedinu   Gongul_isl_net   25_gonguleidir_snaefellsnes_NETstor





Smelltu hér til ad sjá sýnishorn úr bókinni....

Vara ekki fáanleg

Aukaflokkar



Þetta vefsvæði byggir á Eplica