Valmynd.
Harðband
Í Foreldrahandbókinni tekur Þóra Sigurðardóttir saman hagnýtar upplýsingar, ráðleggingar og reynslusögur um allt frá bleyjuskiptum og brjóstagjöf til fæðingarþunglyndis og fyrsta ferðalagsins, en það getur reynst ógnvekjandi upplifun að ferðast með lítinn einstakling. Í bókinni má nálgast hafsjó af fróðleik og upplýsingar um hitt og annað sem nýbakaða foreldra fýsir að vita og gott er að hafa á einum stað. Þóra hefur um árabil starfað við marga helstu fjölmiðla landsins, meðal annars við dagskrárgerð, blaðamennsku og pistlagerð, auk þess að sinna ritstörfum og þýðingum. Foreldrahandbókin er þriðja bók hennar. Í hana skrifar fjöldi sérfræðinga og geymir hún auk þess aragrúa reynslusagna og góðra ráða frá foreldrum.
Smelltu hér til að skoða sýnishorn úr bókinni
Fallega skrifuð og uppsett, umbrotið skemmtilegt, eitt það besta við þessa bók er að tónninn í henni er allur sá að börn eru mismunandi og það þurfi hver að finna sína leið. Hún er alltaf að róa menn þannig að foreldrar fái ekki á tilfinninguna að það sé eitthvað að barninu þeirra því það sé ekki í einhverju meðaltali og að það eru engar reglur. Svona „don´t panic" fílingur. Gríðarlega flott bók. Fjórar stjörnur. - Toggi (Þorgeir Tryggvason) í bókmenntagagnrýni Virkra morgna á Rás 2, 1. des. 2010
Svona „don´t panic" fílingur. Gríðarlega flott bók. Fjórar stjörnur.
- Toggi (Þorgeir Tryggvason) í bókmenntagagnrýni Virkra morgna á Rás 2, 1. des. 2010
Þessi bók er frábært framtak einstaklings með brennandi áhuga, sem hefur lagt nótt við dag að koma öllu þessu efni fyrir á einum stað, til að efla þekkingu samborgara sinna á líðan foreldra og ungbarna. Til hamingju! – Hildur Kristjánsdóttir, yfirljósmóðir og Salbjörg Bjarnadóttir, geðhjúkrunarfræðingur
Þessi bók er frábært framtak einstaklings með brennandi áhuga, sem hefur lagt nótt við dag að koma öllu þessu efni fyrir á einum stað, til að efla þekkingu samborgara sinna á líðan foreldra og ungbarna. Til hamingju!
– Hildur Kristjánsdóttir, yfirljósmóðir og Salbjörg Bjarnadóttir, geðhjúkrunarfræðingur
Það hefur komið mér á óvart að í öllum þeim bókum sem ég á í mínum bókahillum um barneignarferlið er hvergi fjallað um atferli barnsins fyrsta sólarhringinn. Það er því von mín að þessi lestur hjálpi ykkur að njóta fyrsta sólarhringsins sem best með barninu ykkar. – Helga Sigurðardóttir, ljósmóðir
Það hefur komið mér á óvart að í öllum þeim bókum sem ég á í mínum bókahillum um barneignarferlið er hvergi fjallað um atferli barnsins fyrsta sólarhringinn. Það er því von mín að þessi lestur hjálpi ykkur að njóta fyrsta sólarhringsins sem best með barninu ykkar.
– Helga Sigurðardóttir, ljósmóðir
Þegar fólk er spurt um mestu hamingjustundir lífsins er sígilt svar: „Fæðing barna minna.“ En það er bara byrjunin. Síðan er að fylgjast með þeim taka út vöxt og þroska skref fyrir skref og verða að einstökum manneskjum. Það kostar blóð, svita og tár en í kaupbæti uppskera foreldrar bros, stolt, gleði, sæluhroll, hlátursköst og hitastraum í hjartanu. – Sæunn Kjartansdóttir, sálgreinir
– Sæunn Kjartansdóttir, sálgreinir
Þvílík snilld sem þessi bók er :) vá ég held að ég hafi aldrei fjárfest í einhverju eins gagnlegu og henni!!:) Mæli hiklaust með þessari bók fyrir verðandi foreldra og líka þá sem eru með kríli :) Langaði bara að segja ykkur frá hamingju minni a þessari bók híhí..Gangi ykkur vel ;) – Ummæli af spjallvefnum á barnalandi Smelltu hér til að sjá frekari umfjöllun um bókina á barnalandi
– Ummæli af spjallvefnum á barnalandi
Smelltu hér til að sjá frekari umfjöllun um bókina á barnalandi