Þýtt og staðfært: Aðalheiður Ploder.
Stjórnast líðan þín af streitu og álagi? 1001 heilræði fyrir fólk sem hefur engan tíma til að slaka á! Í bókinni eru stuttir, hvetjandi og uppbyggilegir kaflar sem gott er að grípa til. Bók sem lætur þér líða vel... þú átt það skilið.
Meira
Höfundur: Sally Lewis
Íslensk þýðing: María Hrönn Gunnarsdóttir
Hér er að finna fjölda góðra ráða til að komast í form eftir meðgöngu og fæðingu. Í bókinni er 10 vikna endurhæfingaráætlun, skipulögð af sérfræðingi, og miðast við að konan nái sínum fyrri andlega og líkamlega styrk sem allra fyrst.
Meira
Blálandsdrottningin hefur líklega borist hingað með frönskum skútum. Hún er ein af mörgum afbrigðum hinnar auðmjúku kartöflu sem hefur verið í öndvegi á borðum Íslendinga alla tuttugustu öldina. Nafn bókarinnar vísar þó einnig til hinnar hugrökku og hjartastóru söguhetju sem varð fyrst kvenna á Íslandi til að hafa tekjur af kartöflurækt.
Meira
Myndskreyting: Erla Sigurðardóttir
Þegar barn fæðist er nánst hvert atvik minnisvert, hvort sem um er að ræða þroska, líkamlegan eða andlegan, gleði eða sorg, myndir og minningar. Bókin gefur tækifæri til að skrá niður helstu viðburði í lífi barnsins, allt frá fæðingu til fyrsta skóladags.
Meira
Höfundur: Jónína Benediktsdóttir
Jónína Ben er þekkt baráttukona úr íslensku þjóðlífi og vinsæll fyrirlesari. Hvatningarnámskeið hennar, Konur í kjafti karla, vöktu mikla athygli en þessi bók er að hluta til byggð á þeim.
Meira
Hildur Hermóðsdóttir og Kristín Birgisdóttir tóku saman.
Meira
Höfundur: Delphine Minoui
Þýðandi: Laufey S. Sigurðardóttir
Litla jemenska stúlkan Nojoud sýndi ótrúlegan kjark þegar hún óskaði eftir skilnaði og reis þar með upp gegn fornum hefðum í landi sínu.
Meira
Íslensk þýðing: Sigríður Á. Ásgrímsdóttir
Bók sem kveikir neistann að starfsgleði og vellíðan. Höfundarnir, Stephen C. Lundin, Harry Paul og John Christensen, fengu hugmynd að bókinni þegar þeir kynntust í hinni feikivinsælu fiskbúð Pike Place í Seattle, Kanada. Í bókinni taka þeir á helstu vandamálum í stjórnun og starfsmannahaldi, svo sem starfsleiða og kulnun í starfi, og ýta undir bjartsýni og vinnugleði.
Meira
Íslensk þýðing: Sigríður Á. Ásgrímsdóttir
Bók sem kveikir neistann að starfsgleði og vellíðan. Höfundarnir, Stephen C. Lundin, Harry Paul og John Christensen, fengu hugmynd að bókinni þegar þeir kynntust í hinni feikivinsælu fiskbúð Pike Place í Seattle, Kanada. Í bókinni taka þeir á helstu vandamálum í stjórnun og starfsmannahaldi, svo sem starfsleiða og kulnun í starfi, og ýta undir bjartsýni og vinnugleði.
Meira
Förðun - þín stund inniheldur alla helstu grunntækni í förðun fyrir konur á öllum aldri, alveg frá þeim yngstu til þeirra elstu. Allar viljum við líta sem best út við þau margbreytilegu tilefni sem lífið hefur upp á að bjóða. Bókin er hnitmiðuð og einföld í notkun. Bókin er hnitmiðuð og einföld í notkun og nú er komið að þér að eiga þína eigin stund, njóta hennar og vera ánægðari með sjálfa þig á eftir!
Meira
Gríska munkríkið Aþos er einstakt í veröldinni. Þó að María guðsmóðir sé verndari þess hefur ekkert kvenkyns (nema fuglar og flugur) mátt koma þar inn fyrir landamærin síðan ríkið var stofnað árið 963. Aþos var skráð númer 179 á heimsminjaskrá UNESCO árið 1988.
Meira
Höfundur: Eyvör Ástmann
Í þessari nærbók sinni veitir hin ástsæla Eyvör Ástmann fræðslu um mál sem snerta viðkvæma og persónulega strengi. Nú kemur hún að fjölbreyttum eiginleikum nærklæðann, flokkun þeirra og litrófstáknmáli og minnir á hve nærfataval skipar snaran þátt í tjáningu og mennlegum samskiptum.
Meira
Þýðandi: Þorgrímur Þráinsson
Í Goðsögninni, sem er fyrsta bók höfundar, sameinast ljósmyndir hans og saga þar sem hann fjallar um persónulegan þroska í bland við reynslu sína og hughrif frá því hann bjó og starfaði í Himalajafjöllum.
Meira
Höfundur: Fredrik Härén
Íslensk þýðing: Haraldur Jónsson
Þetta var góð hugmynd – skrifaðu hana niður! Þessi bók er byggð á þeirri forsendu að góðar hugmyndir fæðist ekki af sjálfu sér; það verður að lokka þær út. Innblástur og brennandi áhugi eru tvær pottþéttar aðferðir til að draga þær fram í dagsljósið.
Meira
Iceland´s turf buildings have an important place in the country´s national heritage, and are unique in the world. From the settlement of Iceland around 900 AD until the early 20th century Icelandic people lived in such buildings. Today only a handful of these turf houses and churches remain. This unique publication showcases some examples of Icelandic turf buildings from various periods in the country´s history.
Meira
Guðrún er frumkvöðull í umhverfisvænni ferðaþjónustu og vinnu að vottun fyrirtækja og sveitarfélaga. Í þessari bók hvetur hún konur til að vinna saman og taka upp grænan lífsstíl.
Meira
Höfundur: Eyvör Ástmann
Bókin handa gæsinni og steggnum. Handa öllum sem elska húmor! Hér er lýst afbrigðum kossa í gamansömum tón, allt frá fipli upp í djúpa skrúfu. Kúnstin að kyssa er tilvalin bæði fyrir nýgræðinga og þá sem vilja auka þekkingu sína og færni.
Meira
Legend is Fiann's first book combining his photography and writing. It focuses on personal growth and incorporates the experience and inspiration he gained from living and working in the Himalayas.
Meira
Höfundur: Þórhallur Heimisson
Í þessari bók er farinn rannsóknarleiðangur aftur í aldir til að öðlast gleggri mynd af einni dularfyllstu persónu fornaldar. Maríu Magdalenu. Frá alda öðli hefur hún skipað sérstakan sess í huga fólks, bæði þeirra sem fylgdu söguskoðun kirkjunnar og efasemdamanna.
Meira
Njála lifandi komin er á auðlesnu máli með gullfallegum ljósmyndum frá söguslóðunum. Jóhannes Eiríksson endursegir hér Njálu og tengir við söguslóðirnar með glæsilegum ljósmyndum. Efnið er kryddað með ljóðum eftir ýmsa þekkta höfunda. Jón Böðvarsson skrifaði eftirmála í bókina.
Meira
Ættleiðing er viðkvæmt og afdrifaríkt ferli fyrir lítið barn sem eflaust mun allt sitt líf velta reglulega fyrir sér uppruna sínum og örlögum. Viðmælendur Sigrúnar Maríu Kritinsdóttur eru fagfólk, ættleiddir einstaklingar og fjölskyldur þeirra.
Meira
Höfundur: Bruce McMillan
Fönguleg póstkortabók, full af gæsilegum ljósmyndum af náttúru Íslands og kennileitum, með hnyttnum athugasemdum frá höfundi The Problem With Chickens, Bruce McMillan. Spennandi og skemmtileg bók sem skartar ekta íslenskri náttúrufegurð.
Meira
Höfundur: Bruce McMillan
Falleg og skemmtileg póstkortabók frá Bruce McMillan, uppfull af ljósmyndum af lundanum víðsvegar um landið. 30 stórglæsilegar ljósmyndir prýða bókina með skemmtilegum staðreyndum um lundann og umhverfi hans á baki hvers korts. Spennandi og skemmtileg bók sem skartar ekta íslenskri náttúrufegurð.
Meira
Hvetjandi og aðgengileg handbók sem inniheldur ótal hugmyndir og tillögur að því hvernig hægt er að njóta lífsins með fjölskyldunni í borginni. Hér er hægt að finna nytsamlegar upplýsingar um ýmiss konar þjónustu, verslun, námskeið, útivist og öryggismál og margt fleira sem varðar vellíðan og hamingju barna.
Meira
Ljósmyndir Hélène og Skúli Magnússon (og fleiri)
Íleppar eða rósaleppar eru prjónuð innlegg sem notuð voru í sauðskinnsskó eða roðskó til þæginda og skrauts. Þessi bók heldur til haga þeirri gömlu prjónahefð og gefur hugmyndir um hvernig má hagnýta hana við nútímahönnun.
Meira
Höfundur: Sr. Gísli H. Kolbeins
Skáld-Rósa eða Vatnsenda-Rósa varð þjóðþekkt í lifanda lífi og er löngu orðin goðsögn. Sr. Gísli H. Kolbeins minnist hér Rósu Guðmundsdóttur. Hann rekur einstæða sögu hennar svo eftirminnilega að líklega mun þjóðin muna Skáld-Rósu um ókomin ár.
Meira
Höfundur: Halla Gunnarsdóttir
Bókin Slæðusviptingar byggist á viðtölum Höllu Gunnarsdóttur við þrettán íranskar konur en þar er dregin upp áhugaverð mynd af lífi þeirra og störfum. Um leið fræðist lesandinn um sögu og menningu fólksins sem byggir þetta umtalaða land og inn á milli má lesa ferðasögur höfundar og nokkurra annarra Íslendinga sem þangað hafa lagt leið sína.
Meira
Höfundur: Hera Karlsdóttir
Tarotspilin eru allra spila sérstæðust og leyndardómsfyllst. Við notkun þeirra sjáum við okkar innri mann í nýju ljósi. Að læra að lesa úr Tarotspilum er eins og að læra nýtt, fágætt og gagnlegt tungumál. Hvort eða hvernig við nýtum okkur skilaboð þeirra er undir sjálfum okkur komið.
Meira
DVD: Heimildamyndin um Leyndarmálið
Vegleg heimildamynd um The Secret er fáanleg á ensku hjá Sölku. Áhorfandinn er leiddur áfram í gegnum viðtöl við höfunda, reynslusögur fólks sem hefur notað Leyndarmálið til að sigrast á erfiðleikum eða ná árangri og ýmsa spekinga sem hafa rannsakað fyrirbrigðið.
Meira
Þýðendur: Gunnar Sigvaldason og Katrín Jakobsdóttir
Hagnýtar uppástungur um grænt uppeldi. Barninu líður betur og náttúran blómstrar. Með því að nota umhverfisvænar bleyjur, mildar snyrtivörur og hreinsiefni, endurnýta föt og húsgögn, njóta útivistar og fækka bílferðum stundum við uppeldi fyrir umhverfið.
Meira
Höfundur: Masaru Emoto
Eftir áralangar rannsóknir hefur japanski vísindamaðurinn Masaru Emoto fundið út að ekki einungis náttúruöflin hafa áhrif á eiginleika vatnsins heldur líka allt það sem mannfólkið segir og gerir. Emoto byggir tilraunir sínar á myndum sem hann tekur af kristöllum í frosnu vatni við ólíkar aðstæður. Kristallarnir taka sláandi breytingum og styðja þá skoðun að allt líf byggist á mismunandi tíðni bylgjuhreyfinga.
Meira
Höfundur: Steingrímur Sigfússon
Titill bókarinnar vísar til þess að aðalinntak stjórnmálanna eigi að vera hagsmunir heildarinnar, að bæta lífsskilyrði allra. Í seinni tíð hefur það sjaldan gerst að forystumaður í íslenskum stjórnmálum greini skýrt og skilmerkilega frá í bók þeirri grundvallarhugmyndafræði sem hann aðhyllist. Hér eru spilin lögð á borðið og boðið upp á rökræður um stjórnmál þar sem hlutirnir eru settir í samhengi allt frá staðbundnum rammíslenskum veruleika til hraðfara breytinga á öld hnattvæðingar.
Meira
Höfundur: Sigrún Huld Þorgrímsdóttir
Á liðinni öld hafa orðið meiri breytingar á íslensku samfélagi en dæmi eru til á jafn skömmum tíma. Sú kynslóð sem þá lifði ólst upp við veruleika sem yngra fólk getur vart gert sér í hugarlund.
MeiraGuðríður B. Helgadóttir í Austurhlíð í Húnavatnssýslu er þekkt fyrir ötul störf að félagsmálum og náttúruvernd. Hún er líka einstök listakona og hefur haldið sýningar á listaverkum sínum sem eru útsaumaðar myndir, margar fegurri og fíngerðari en olíumálverk eða vatnslitamyndir. Í bókinni segir hún frá lífshlaupi sínu, baráttumálum og listsköpun.
Meira