forlag með sál
Dömufrí

Dömufrí

Höfundur: Jónína Benediktsdóttir

Jónína Ben er þekkt baráttukona úr íslensku þjóðlífi og vinsæll fyrirlesari. Hvatningarnámskeið hennar, Konur í kjafti karla, vöktu mikla athygli en þessi bók er að hluta til byggð á þeim.

Harðband

Hér er einnig að finna opinskáa lýsingu á líðan þriggja barna móður í hörðum heimi viðskiptanna þar sem lögmál karla eru ráðandi. Dömufrí er fyrir alla sem kunna að meta kjark, áræðni og einlægni.

Í bókinni endurspeglast heitar tilfinningar, kvenleg ást og umhyggja sem er konum oft fjötur um fót á vettvangi atvinnulífsins. Bókin geymir ótal heilræði fyrir konur sem vilja ná betri tökum á lífi sínu og hugleiðingar sem hitta lesandann beint í hjartastað.

Verð 2.990 kr. Netverð 300 kr.

Aukaflokkar



Þetta vefsvæði byggir á Eplica