forlag með sál
Valmynd
.
Er lítið mein yfirtók líf mitt
Er lítið mein yfirtók líf mitt
Lilja Sólrún Halldórsdóttir
Á sólríkum haustdegi fékk Lilja Sólrún þær fréttir að hún væri með brjóstakrabbamein. Við tók þriggja ára tímabil sjúkdómsins þar sem hún upplifði slæmar aukaverkanir af lyfjameðferðinni sem þó bjargaði lífi hennar.
Harðband
Miðinn vill ekki í ruslið og er búinn að þvælast á borðinu í mánuð. Það er eins og einhver sé að ýta á mig og segja mér að ég skuli fara svo ég panta tíma og dríf mig af stað. Eftir nokkra daga er hringt og rödd í símanum segir: „Lilja, það þarf að endurtaka myndatökuna. Geturðu komið á morgun, best að ljúka þessu af.“
Á sólríkum haustdegi fékk Lilja Sólrún þær fréttir að hún væri með brjóstakrabbamein. Við tók þriggja ára tímabil sjúkdómsins þar sem hún upplifði slæmar aukaverkanir af lyfjameðferðinni sem þó bjargaði lífi hennar. Hér lítur hún til baka og dregur upp svipmyndir minninga um sköllótta konu; sumar eru sláandi, aðrar ljóðrænar sagðar í trúnaði og enn aðrar spaugsamar og kaldhæðnar í senn.
Þetta gæti verið saga konunnar sem þú sérð daglega í búðinni, í ræktinni, á rauðu ljósi ... hvar sem er.
Í formála bókarinnar segir Lilja Sólrún:
Aukaverkanir hinna ýmsu krabbameinslyfja eru mjög breytilegar og fólk þolir þær misjafnlega vel eða illa. Í mínu tilfelli varð líðanin ákaflega slæm og ég hef hitt konur sem hafa svipaða reynslu. Ég á mér ósk um að frásögn mín geti stuðlað að betri skilningi á líðan og þörfum fólks sem lendir í þeim hörmungum að greinast með krabbamein og fá miklar aukaverkanir vegna meðferðar. En ég samgleðst öllum sem fá litlar og jafnvel engar aukaverkanir. Markmiðið er alltaf eitt, að sigrast á meininu.
Verð
3.490 kr.
Netverð
2.990 kr.
Þú ert hér:
Forsíða
>
Bækur
salka.is
Forsíða
Höfundar
Íslenskir
Erlendir
Bækur
Fréttir
Fréttir
Umsagnir
Forsíðu tilkynningar
Um Sölku
Um Sölku
Starfsmenn
Staðsetning
Gagnlegar leiðbeiningar
Þú ert hér
Forsíða
>
Bækur
>
Handbækur
>
Ýmislegt
Bækur
Barnabækur
2-6 ára
7-10 ára
Barnabækur - Hljóðbækur
Unglingar
Bækur 2012
English
Ferðir og landið
Fyrir hann
Handbækur
Ferðabækur og fræðibækur
Heilsa
Matur og lífsstíll
Sjálfsrækt
Hljóðbækur
Uppeldi
Ýmislegt
Ævisögur
Hljóð og mynd
Hörpuútgáfan
Skáldverk
Erlendar skáldsögur
Íslenskar skáldsögur
Kiljumarkaður Sölku
Ljóð
Tilboð
Leit á vefsvæðinu
Leitarorð:
Karfan þín
0
hlutir
Póstlisti Sölku
*
Netfangið þitt
Aukaflokkar
Hafa samband
Þetta vefsvæði
byggir á Eplica