Valmynd.
Kilja
Eins og fyrr var sendur út keðjupóstur og konur beðnar um að skrifa hugleiðingar um hvaðeina frá eigin brjósti. Að baki bókarinnar standa 55 konur og allar veita þær okkur örlitla innsýn í sitt daglega líf og þankagang nútímans. Hlutverk þessarar dagatalsbókar er bæði að vera hjálp í skipulaginu en líka að hvetja lesendur til að huga jafnt að því smáa og stóra sem lífið býður upp á.
Myrra Leifsdóttir hannar bókina.
Smelltu á myndina hér að neðan til að lesa viðtal við Kristínu Birgisdóttur sem ritstýrir Konur eiga orðið og Myrru Leifsdóttur sem myndskreytir hana.