forlag með sál
Elíasarbók

Elíasarbók

Sögur og – Elías Mar

Í bók þessari birtist í fyrsta skipti fjölmargt sem hraut úr penna meistarans Elíasar Mar. Hann var einn af þeim sem á sinni tíð setti sterkan svip á reykvískt mannlíf og skipaði sér ákveðinn sess í íslensku bókmenntaflórunni, enda óhræddur við að reyna á þanþol formsins.

Harðband

Kúnstugt væri … að safna saman í eitt handrit ýmsum þeim yrkingum sem hrotið hafa úr
penna manns fyrr og síðar … það væri andskotalaust af minni hálfu eftir að ég er dauður
… Flest eru þetta hálfkæringsvísur, paródíur og útúrsnúningar, en sumt líka háalvarlegt.

Elías Mar (1924-2007)

Fullt verð: 5490 – netverð 3.499



Í bók þessari birtist í fyrsta skipti fjölmargt sem hraut úr penna meistarans Elíasar Mar. Hann var einn af þeim sem á sinni tíð setti sterkan svip á reykvískt mannlíf og skipaði sér ákveðinn sess í íslensku bókmenntaflórunni, enda óhræddur við að reyna á þanþol formsins. Mörkin milli raunveruleika og skáldskapar eru stundum óskýr en sögusviðið, hvort sem það er Reykjavík eða borg úti í heimi, stendur lesanda ljóslifandi fyrir sjónum. Persónurnar eru margar ógleymanlegar, þær spretta fram í fjölbreytileika sínum og auðga safn íslenskra mannlýsinga. Endurminningar, skáldastælingar, ástarsögur og ljóð, mannlýsingar, háðkvæði og heimspeki; hvar sem borið er niður leiftrar textinn af einskærri sköpunargleði og Elíasi sjálfum.

Þorsteinn Antonsson tók saman.
Verð 5.490 kr. Netverð 3.499 kr.

Aukaflokkar



Þetta vefsvæði byggir á Eplica