forlag með sál
Jólasögur

Jólasögur

Bryndís Víglundsdóttir

Bryndís skrifar sniðugar sögur um jólasveina: Jólabaðið, Jólasveinarnir í Hamrahlíð og Grýla á fæðingadeildinni. Og nú hefur hún lesið sögurnar inn á hljómdisk. Er nokkuð notalegra en að hlusta á skemmtilegar og jólalegar sögur á aðventunni?

CD

Það er mikið um að vera hjá Grýlu. Hún þarf að setja alla strákana sína í bað og þeir hafa ekki farið í bað síðan fyrir síðustu jól. Viljiði ekki bara hlusta á söguna af jólabaði jólasveinanna?


Elín heitir lítil stelpa í Hlíðunum í Reykjavík. Hún hittir jólasveinana fyrir utan Menntaskólann við Hamrahlið þar sem þeir eru að hjálpa henni Elínu alfastelpu að komast aftur heim til sín. Jólasveinarnir eru mjög ráðagóðir. Hvað haldið þið að þeir hafi gert?


Grýlu er sárillt í maganum og hann er orðinn ógnarstór. Strákarnir hennar, jólasveinarnir ákveða að fara með hana til borgarinnar á spítala. Getur verið að 14. jólasveinninn sé á leiðinni?


Verð 1.490 kr. Netverð 990 kr.

Aukaflokkar



Þetta vefsvæði byggir á Eplica