Valmynd.
CD
„Tímaglasið" heitir nýútkominn hljómdiskur eftir Hrólf Jónsson sem Salka gefur út. Diskurinn geymir 11 lög og eru þau öll nema eitt eftir Hrólf sem einnig semur textana og syngur. Jón Ólafsson sér um undirleik á hljómborð og fleiri ásláttarhljóðfæri og Stefán Már Magnússon spilar á gítar, bassa, trommur og munnhörpu. Diskurinn var hljóðritaður í Eyranu snemmsumars 2010 og sá Jón Ólafsson um upptökuna og Haffi Tempó um hljóðblöndun og tónjöfnun. Ljósmyndir eru eftir Sigrúnu Ingu Hrólfsdóttur en Hildur Zoëga sá um hönnun og umbrot.