Höfundur: Guðrún P. Helgadóttir
Í þessari bók rekur höfundur æviferil Júlíönu Jónsdóttur en hún var fyrst íslenskra kvenna sem fékk ljóðabók sína gefna út. Sagt er frá uppvaxtarárum hennar á Rauðsgili í Borgarfirði, dvöl hennar í Akureyjum á Breiðafirði, Stykkishólmi og Reykjavík og loks veru hennar vestan hafs, þar sem hún bjó til æviloka.
Meira
Myndskreyting: Erla Sigurðardóttir
Þegar barn fæðist er nánst hvert atvik minnisvert, hvort sem um er að ræða þroska, líkamlegan eða andlegan, gleði eða sorg, myndir og minningar. Bókin gefur tækifæri til að skrá niður helstu viðburði í lífi barnsins, allt frá fæðingu til fyrsta skóladags.
Meira
Samantekt: Þóra Elfa Björnsson
Hvað dreymdi þig í nótt? Hvað merkir draumurinn? Þessi bók svarar spurningum um merkingu drauma, svo sem: Ást og hamingju, gleði og sorg, liti, tákn og mannanöfn. Forvitnileg bók fyrir fólk á öllum aldri.
Meira
Höfundur: Jónas Árnason
Vísur Jónasar Áransonar eru framar öðru til þess fallnar að gera fólki glatt í geði, laða fram bros á vör, kveikja leiftur í auga. Jónasi er oftar en ekki alvara með gamanseminni. Honum þykir vænt um venjulegt fólk.
Meira
Samantekt: Snorri Hjartarson
Öll ljóðin í þessu úrvali eru listaverk, perlur, sem aldrei gleymast. Snorri Hjartarson var einn af öndvegishöfundum íslenskrar ljóðlistar á tuttugustu öld. Hann var auk þess einn af hæfustu listgagnrýnendum landsins. Þetta er gullfalleg bók sem gaman er að gefa þeim sem manni þykir vænt um.
Meira
Samantekt: Sveinbjörn Beinteinsson.
Hér eru á ferðinni 900 snjallar vísur eftir þekkt skáld og hagyrðinga. Meðal þeirra eru: Páll Ólafsson, Sigurður Breiðfjörð, Bólu-Hjálmar, Kristján Fjallaskáld, Látra-Björg, Skáld-Rósa, Æri-Tobbi, Leirulækjar-Fúsi, Steinunn í Höfn, Eyjólfur ljóstollur og Sölvi Helgason.
Meira
Höfundur: Eysteinn Ásgrímsson
Útgáfu annaðist: Gunnar Finnbogason
Teikning á band og titilblað: Bjarni Jónsson listmálari
Lilja mun ort um 1350 af Eysteini Ásgrímssyni munki. Hún var fyrst prentuð á Hólum í vísnabók Guðbrands Þorlákssonar 1612 en nú munu Lilju-útgáfur vera orðnar sem næst 30.
Meira
Samantekt: Þorvaldur Bragason
Spakmæli - tilvitnanir. Í þessari bók eru nokkur vel valin orð, viturleg, fögur og hnittin um listina að lifa lífinu. Hér eru fleyg orð vísra manna, gullkorn og önnur spakmæli, sem notið hafa vinsælda og eiga mörg langa lífdaga að baki. Hugsunin lifir í meitluðum orðum.
Meira
Höfundur: Guðmundur Böðvarsson
Formáli: Silja Aðalsteinsdóttir
100 úrvalsljóð skáldsins Guðmundar Böðvarssonar á aldarafmæli hans. Umsjón með úrvalinu hafði Silja Aðalsteinsdóttir, sem einnig ritaði kaflar um líf skáldsins og list. Guðmundur var eitt ástsælasta skáld Íslendinga á 20. öld. Bókin er er úrval hundrað ljóða Guðmundar, gefið út í tilefni aldarafmælis hans í september 2004.
Meira
Höfundur: Norman Vincent Paele
Allir geta fundið hér bænir til að nota í gleði og sorg. Að auki geymir bókin leiðbeiningar um bænaiðkun og umfjöllun um gildi bænarinnar í daglegu lífi okkar.
Meira
Höfundur: Michele Weiner - Davis
Nýtt líf í hjónabandið er bók með ítarlegum leiðbeiningum um hvernig má endurnýja hjónabandið í stað þess að skilja. Þú getur breytt hjónabandi þínu með því að breyta sjálfum þér. Í bókinni er sýnt fram á að hægt er að beita aðferðum sem í fljótu bragði virðast fjarstæðukenndar til að rjúfa neikvæð sambúðarmynstur. Það ber árangur strax
Meira
Höfundur: Guðrún P. Helgadóttir
Í þessu verki sínu skýrir höfundur frá hlutdeild íslenskra kvenna í sköpunarsögu íslenskra bókmennta fyrstu aldirnar og segir frá þekktum skáldkonum fyrri alda, þeim Þórunni á Grund, Steinunni á Keldum, Þórhildi skáldkonu, Jóreiði í Miðjumdal, Steinunni í Höfn, Látra-Björgu, Maddömunni á Prestbakka, Ljósavatnssystrum og Vatnsenda-Rósu.
Meira
Sögumaður: Heiðdís Norðfjörð
Þjóðsögur Jóns Árnasonar eru öllum Íslendingum vel kunnar og eru í eðli sínu sígildar sögur sem heilla jafnt unga sem aldna. Hér er um að ræða hljóðbók á tveimur geisladiskum með úrvali velvalin ævintýra í upplestri Heiðdísar Norfjörð.
Meira