Valmynd.
Höfundur: Jónas Árnason
Vísur Jónasar Áransonar eru framar öðru til þess fallnar að gera fólki glatt í geði, laða fram bros á vör, kveikja leiftur í auga. Jónasi er oftar en ekki alvara með gamanseminni. Honum þykir vænt um venjulegt fólk.
Harðband
Það er gaman að syngja með Jónasi. Við brosum og skemmtum okkur – en við skyldum ekki láta okkur sjást yfir að því er eins varið með hann og lóuna: „En þó hún syngi bara dirrindí fannst mér vera þó nokkurt vit í því.“ Það mun gleðja hina fjölmörgu aðdáendur Jónasar að fá í einni bók alla söngva hans með nótum.