Valmynd.
Samantekt: Sveinbjörn Beinteinsson.
Hér eru á ferðinni 900 snjallar vísur eftir þekkt skáld og hagyrðinga. Meðal þeirra eru: Páll Ólafsson, Sigurður Breiðfjörð, Bólu-Hjálmar, Kristján Fjallaskáld, Látra-Björg, Skáld-Rósa, Æri-Tobbi, Leirulækjar-Fúsi, Steinunn í Höfn, Eyjólfur ljóstollur og Sölvi Helgason.
Harðband
Hér er eingöngu um að ræða vísur undir rímnaháttum og er sú grein skáldskapar jafngömul rímunum og á því upptök sín um miðja 14. öld. Nú gefst fólki kostur á að njóta ánægju af þessu safni og yrkja síðan til viðbótar fleiri góðar vísur.
Gömul vísa
Hættu að gráta hringagná,
hyggð ei lá á bera;
þó að bjáti eitthvað á
áttu kát að vera.