forlag með sál

Skáldverk

Allt fram streymir - íslensk náttúruljóð

Ritstjórn: Helga K. Einarsdóttir

Íslensk náttúra í öllum sínum margbreytileik er viðfangsefni ljóðanna í þessari bók. Vetrarstormar, sumarnætur, vorblær og haustmyrkur. Allt mótar þetta skáldin, hvort sem þau yrkja um átök manns og náttúru eða fegurðina sem hvarvetna blasir við.Tími ljóðanna er allt frá Völuspá til loka 20. aldar.

Meira
1.850 kr.

Augað í steininum

Höfundur: Þóra Ingimarsdóttir

Í þessari fyrstu bók Þórunnar er að finna úrval ljóða sem hún hefur ort í gegnum tíðina. Tregablandinn tónn einkennir ljóð hennar og oftar en ekki er fjallað um angist manneskjunnar gagnvart víðsjálum heimi þar sem helsta athvarfið er náttúran sem á undir högg að sækja.

Meira
790 kr.

Austan mána

Þýðing: Pjetur Hafstein Lárusson

Kínversk og japönsk ljóð hafa löngum verið í hávegum höfð, enda fáguð með afbrigðum. Bókin geymir skáldskap frá 8. öld, allt fram til okkar daga í vandaðri þýðingu og einstaklega fögur ljóð eftir japanskar konur skipa drjúgan sess.

Meira
790 kr.

Án spora

Stefanía Guðbjörg Gísladóttir

Stefanía G. Gísladóttir er gift áströlskum manni og eiga þau 4 börn. Eftir 10 ára búskap í Seldal, fluttu þau til Vestur-Ástralíu og eru nú búsett í þorpinu Kendenup. Hún hefur áður sent frá sér nokkrar bækur. Hér fléttar hún saman endurminningar og stemmingar úr umhverfi sínu í ólíkum heimsálfum.

Meira
490 kr.
 

Brekkan

Höfundur: Carl Frode Tiller

Þýðandi: Kristian Guttesen

Brekkan er afar áhrifamikil verðlaunasaga um ungan mann sem dvelur á réttargeðdeild. Hann skrásetur brotakenndar minningar sínar uns til verður heildarmynd af einstaklingi sem dregur lesandann í kæfandi heim geðveikinnar. Bókin skilur eftir samúð og skilning og opnar augu lesandans fyrir vanda þeirra sem glíma við geðveiki.

Meira
990 kr.

Bulgari sambandið

Fay Weldon

Þýðandi: Þórunn Hjartardóttir

Bulgari sambandið er jafn ekta og skartgripirnir frá Bulgari. Þetta er saga um ástir og örlög, afbrýði, losta og græðgi. Völd, hefnd, mútur og mafíu, nunnur og drauga. Konur og karlar takst á, atburðarásin er ófyrirsjáanleg og loks stendur ekki steinn yfir steini. Húmorinn og háðið sem Fay Weldon er frægust fyrir er allsráðandi. Henni er ekkert heilagt!

Meira
990 kr.

Dagbók kameljónsins

Birgitta Jónsdóttir

Dagbók kameljónsins er þroskasaga stúlku sem hefur þurft að berjast við að sogast ekki inn í geðveiki ættmenna sinna, en sjálfsvíg þeirrar manneskju sem hún leit á sem klettinn í lífi sínu verður til þess að hún gerir sér ljóst hve dýrmætt lífið er.

Meira
990 kr.

Draumaveröld kaupalkans

Sophie Kinsella

Íslensk þýðing: Ragnheiður Bjarnadóttir

Viltu koma með í brjálað búðaráp með Rebeccu Bloomwood? Viltu kynnast ástum hennar og örlögum? Rebecca er kaupóður lygalaupur sem heillar lesendur með meinfyndnum uppátækjum og dagdraumum sem ná ekki nokkurri átt ... eða hvað?Hér kemur fyrsta af nokkrum metsölubókum um gelluna sem leynist í hjarta okkar allra ...

Meira
999 kr.

Dætur hússins

Höfundur: Michéle Roberts

Íslensk þýðing: Fríða Björk Ingvarsdóttir

Thérese og Léonie læðast um gamla húsið í Normandy og grufla í fortíðinni. Upp á yfirborðið koma ýmis óþægileg leyndarmál frá gamalli tíð sem hafa afgerandi áhrif á viðkvæmar sálir og móta líf þeirra upp frá því. Þegar frænkurnar hittast eftir tuttugu ára aðskilnað gera hinar sáru minningar samfundinn nær óbærilegan. Grímurnar falla og þær verða að gera upp fortíðina.

Meira
990 kr.
 

Eg skal kveða um eina þig alla mína daga - ástarljóð Páls Ólafssonar - innbundin

Þórarinn Hjartarson

Eftir Pál Ólafsson liggur mesta safn ástarljóða nokkurs íslensks skálds. Nú er þessum arfi í fyrsta sinn safnað í eina bók og birtur fjöldi kvæða og vísna sem ekki hafa áður sést á prenti. Þórarinn Hjartarson tók efnið saman. Hann hefur áður fengist við Pál Ólafsson og sýnt fram á að fá skáld, ef nokkur, eru söngrænni en Páll og hann á sinn stað í hjarta þessarar þjóðar.

Meira
2.990 kr.

Eg skal kveða um eina þig alla mína daga - ástarljóð Páls Ólafssonar - kilja

Höfundur: Páll Ólafsson

Samantekt: Þórarinn Hjartarsson

Eftir Pál Ólafsson liggur mesta safn ástarljóða nokkurs íslensks skálds. Nú er þessum arfi í fyrsta sinn safnað í eina bók og birtur fjöldi kvæða og vísna sem ekki hafa áður sést á prenti. Þórarinn Hjartarson tók efnið saman. Hann hefur áður fengist við Pál Ólafsson og sýnt fram á að fá skáld, ef nokkur, eru söngrænni en Páll og hann á sinn stað í hjarta þessarar þjóðar.

Meira
2.190 kr.

Eitt andartak í einu

Harpa Jónsdóttir

Á sólbjörtum laugardagsmorgni birtist ófrísk stúlka í sjávarplássi úti á landi. Lárus, borinn og barnfæddur í firðinum, er beðinn um að taka á móti henni á flugvellinum. Þorpsbúar komast smám saman að misjafnri fortíð þessarar hæglátu stúlku; þeir fylgjast með glímu hennar við lífið og áður en yfir lýkur eru örlög hennar samofin lífi fólksins í plássinu og þá sérstaklega Lárusi. Meira
2.750 kr.

Engillinn hennar Grétu

Höfundur: Marita van der Vyver

Íslensk þýðing: Rannveig Jónsdóttir

Gréta er týnd í skóginum. Maðurinn hennar hefur sparkað henni út, hún er búin að missa barnið sitt og var að því komin að stinga höfðinu inn í bakarofninn - en hvað sem á gengur glatar hún ekki sinni kómísku sýn á tilveruna. Hún er að byggja upp nýtt líf með vinum sínum og ættingjum, bæði látnum og lifandi.

Meira
690 kr.

Engillinn minn

Höfundur: Anna Margrét Stefánsdóttir

Anna Margrét Stefánsdóttir fjallar hér um afar persónulega lífsreynslu og veitir innsýn í sorgarferli sem margir þekkja - að horfa á eftir barni sem aldrei leit dagsins ljós. Í ljóði og myndum endurspeglast innri átök höfundar sem tekst að okum að ná sátt og hofra með bjartsýni fram á veginn.

Meira
790 kr.
 

Eyru Busters - innbundin

Eva var ung að árum þegar hún ákvað að þrauka bernskuna hjá móður sem gerði líf hennar að helvíti. Fjörutíu árum síðar rifna upp gömul sár og hið sama gildir um rósirnar hennar. Mögnuð skáldsaga, kvikmynd eftir henni er væntanleg á næsta ári. Meira
2.990 kr.

Eyru Busters - kilja

Eva var ung að árum þegar hún ákvað að þrauka bernskuna hjá móður sem gerði líf hennar að helvíti. Fjöritíu árum síðar rifna upp gömul sár og hið sama gildir um rósirnar hennar. Mögnuð skáldsaga, kvikmynd eftir henni er væntanleg á næsta ári. Meira
1.490 kr.

Ég læðist framhjá öxi

Bókin lýsir upplifun lítillar stúlku sem þarf að lifa af ... þangað til hún skilur í stað þess að skynja ... Lýdía býr ásamt fjölskyldu sinni í smábæ í Noregi á áttunda áratugnum. Hún hefur mikið og frjótt ímyndunarafl – hún dvelur oft við augnablik og minningar og úr þeim verða sögur, stundum léttar og barnslegar en sumar þeirra eiga sér dekkri hlið ...
Meira
1.990 kr.

Ég læðist framhjá öxi

Bókin lýsir upplifun lítillar stúlku sem þarf að lifa af ... þangað til hún skilur í stað þess að skynja ... Lýdía býr ásamt fjölskyldu sinni í smábæ í Noregi á áttunda áratugnum. Hún hefur mikið og frjótt ímyndunarafl – hún dvelur oft við augnablik og minningar og úr þeim verða sögur, stundum léttar og barnslegar en sumar þeirra eiga sér dekkri hlið ...
Meira
1.990 kr.

Fimmta barnið

Eyrún Ýr Tryggvadóttir

Lík af ungbarni finnst í frystikistu í ruslagámi. Andrea rannsakar málið og áður en hún veit af teygir það anga sína hálfa öld aftur í tímann og fólki af öllum þjóðfélagsstigum.

Meira
1.690 kr.
 

Fléttur

Guðrún Hannesdóttir

Guðrún Hannesdóttir er löngu kunn fyrir barnabækur sínar og myndskreytingar. Auk þess hefur hún lengi unnið að því að safna gömlum vísum fyrir börn. Fléttur eru fyrsta ljóðabók hennar. Aðeins örfá ljóð hennar hafa áður birst á prenti. Árið 2007 hlaut hún Ljóðstaf Jóns úr Vör í samnefndri ljóðakeppni fyrir ljóðið Offors.

Meira
790 kr.

Forsetinn er horfinn

Anne Holt

Fyrsti kvenforseti Bandaríkjanna kemur í heimsókn til Noregs og undarleg atburðarás hefst. Forsetinn hverfur og svo virðist sem heimsveldi Bandaríkjamanna sé ógnað og jafnframt konungdæmi Noregs á sjálfan þjóðhátíðardaginn. Meira
1.990 kr.

Forsetinn er horfinn

Anne Holt

Fyrsti kvenforseti Bandaríkjanna kemur í heimsókn til Noregs og undarleg atburðarás hefst. Forsetinn hverfur og svo virðist sem heimsveldi Bandaríkjamanna sé ógnað og jafnframt konungdæmi Noregs á sjálfan þjóðhátíðardaginn. Meira
1.990 kr.

Glerhjálmurinn

Sylvia Plath

Þýðandi: Fríða Björk Ingvarsdóttir

Sylvia Plath var eitt virtasta skáld seinni hluta 20. aldar í Bandaríkjunum. Saga hennar, Glerhjálmurinn, er áhrifamikil lýsing á reynslu einstaklings sem ratar eftir miklar hremmingar út úr myrkviðum dýpstu sálarangistar - og endurfæðist í andlegum skilningi. Þessi margslungna saga er talin ein merkasta perla heimsbókmenntanna.

Meira
990 kr.

Hátt uppi við Norðurbrún

Hlín Agnarsdóttir

Hátt uppi við Norðurbrún er snargeggjuð nútímaskáldsaga sem greinir frá lífi og örlögum Öddu Ísabellu, sem rekur mínigeðdeild uppi í rúmi í svenfherberginu sínu. Rúmið gefur vel af sér bæði mannauð og peninga og þaðan stjórnar hún lífi sínu og annarra. Adda Ísabella er sérfræðingur í sannleikanum um aðra, en saga hennar er aðeins sönn að einu leyti hún er ekki þroskasaga.

Meira
920 kr.
 

Heimili fröken Peregrine fyrir sérkennileg börn

Þegar Jakob er lítill segir afi Portman honum sögur af dularfullu barnaheimili sem hann ólst upp á og sýnir honum furðlegar ljósmyndir af munaðarlausum börnum. Heimili fröken Peregrine fyrir sérkennileg börn, ævintýrasaga fyrir unglinga og fullorðna. Meira
2.790 kr.

hér

Kristín Ómarsdóttir

Kristín hefur skrifað magnaða skáldsögu þar sem óviðjafnanlega ljóðrænn og leikandi texti kemur sífellt á óvart og undirstrikar fáránleikann sem einkennir mannleg samskipti í stríðshrjáðri veröld.

Meira
1.290 kr.

Hljómið eitt

Sandra Benítez

Sögusviðið er El Salvador á árunum 1932 til 1977 þar sem þrjár kynslóðir kvenna flétta sér ólík örlög. Annars vegar eru það bláfátækar Pipil-indíánakonur og hins vegar hvítar og auðugar eiginkonur plantekrueigenda. Þótt himinn og haf skilji að þá heima sem þær lifa í, þá eiga þær ýmsa mannlega þræði sameiginlega. Meira
990 kr.

Hlustarinn - innbundin

Ingibjörg Hjartardóttir

Þessi þriðja skáldsaga Ingibjargar Hjartardóttur kom út snemma árs og seldist upp en er nú endurútgefin. Sagan hlaut prýðilega dóma og athygli erlendis. Útgáfurétturinn var nýlega seldur til Þýskalands. Meira
2.490 kr.

Hlustarinn - kilja

Ingibjörg Hjartardóttir

Árið 1949 var fjölmargt verkafólk flutt frá Þýskalandi til að vinna á sveitabæjum á Íslandi. Nær sextíu árum seinna verður saga þessara kvenna viðfangsefni Helgu í BA-ritgerð í sagnfræði. Á sumardaginn fyrsta fer hún norður í land til að spjalla við Súlu, sem er ein fárra eftirlifandi Þjóðverja úr þessum hópi. Helga er ekki fyrr komin til hennar en skellur á aftakaveður og hún verður veðurteppt. Fljótlega vaknar sá grunur að erindi Helgu sé annað og meira en að safna heimildum. Er ritgerðin ef til vill yfirskin fyrir heimsókn hennar til Súlu? Hvaða leyndarmál búa undir yfirborðinu? Meira
1.990 kr.
 

Hvar er systir mín?

Eyrún Ýr Tryggvadóttir

Andrea býr i Kaupmannahöfn og fær neyðarkall að heiman frá tvíburasystur sinni sem hún hefur ekki talað við í þrjú ár. Hennar bíða skelfilegar fréttir og fyrr en varir er hún flækt í undarlega atbruðarás sem ekki verður séð fyrir endann á. Ýmislegt úr fortíðinni skríður upp á yfirborðið og blandast núverandi atburðum á dularfullann hátt.

Meira
1.690 kr.

Hversdagsgæfa

Þóra Jónsdóttir

Gullfallegar, knappar og ljóðrænar lýsingar úr hverdagslífi konu sem lítur yfir farin veg.

Meira
1.990 kr.

ICELANDIC QUEENS

/ARTISTS /ANGELS / STAGES / SCAPES / BDSM AND THE KID

Ögrandi og öðrvísi ljósmyndabók eftir Jónatan Grétarsson sem sannir listunnendur láta ekki fram hjá sér fara. Einstakar ljósmyndir af leikurum, listafólki og fólki sem hefur gaman af að klæðast óvenjulegum búningum í mismunandi tilgangi
Meira
6.990 kr.

Inn og út um gluggann

Höfundur: Kristín Ómarsdóttir

Myndir: Anna Hallin og Ósk Vilhjálmsdóttir

Snilldarleg ljóð og skemmtilegar ljósmyndir mætast í þessari bók og vekja hugrenningar um rými, sjónarhorn, hlutverk listar og skáldskapar. Hvar á listin sér stað? Bókin var gefin út í tengslum við samnefnda sýningu í Listasafni ASÍ.

Meira
460 kr.

Í hlýjum skugga

Höfundur: Lotta Theil

Þýðandi: María Sigurðardóttir

Eva lifir í tveimur heimum - en á sér bara eitt líf. Á daginn þvælist hún um undirheima Stokkhólms til að kaupa heróínskammtinn sinn en á nóttunni er hún vörður í öryggismiðstöð, tilbúin í útkall. Þetta er saga um fíkn, ást, vináttu, sorg og einmanaleika. Bókin hefur vakið gríðarlega athygli og eftir henni hefur verið gerð kvikmynd.

Meira
990 kr.
 

Í ljós

Höfundur: Hallgerður Gísladóttir. 

Hallgerður sendi frá sér og ritstýrði nokkrum bókum en Í ljós var fyrsta ljóðabók hennar sem gaf fyrirheit um frjóan skáldferil. Bókin fékk mikla athygli og góða dóma þegar hún kom út haustið 2005.

Meira
790 kr.

Jólaljóð

Kristín Ómarsdóttir

Kristín kvaddi sér hljóðs fyrir nítján árum og vakti þá strax athygli fyrir frumlegan og prakkaralegan stíl. Hún hefur sent frá sér á annan tug verka, leikrit, ljóðabækur, skáldsögur og smásögur.

Meira
790 kr.

Kaupalkinn í New York

Sophie Kinsella

Íslensk þýðing: Ragnheiður Bjarnadóttir

Sjálfstætt framhald af hinni geysivinsælu bók um Draumaveröld kaupalkans, um hina jákvæðu og hrifnæmu Becky, sem segir kannski ekki alltaf alveg satt, en er samt alltaf jafn einlæg og heillandi.

Meira
999 kr.

Landið í brjóstinu

Þóra Jónsdóttir frá Laxamýri

Þóra Jónsdóttir frá Laxamýri er ein athyglisverðasta samtímaskáldkona okkar. Hún yrkir meðal annars um ástina, náttúruna og órjúfanleg tengsl við fortíðina. Fyrsta ljóðabók Þóru, Leit að tjaldstæði, kom út 1973, en síðan hefur hún sent frá sér átta bækur auk ljóðaþýðinga. Landið í brjóstinu er safn úrvalsljóða úr öllum bókunum.

Meira
1.490 kr.

Landnemarnir

Vilhelm Moberg

Hér birtist í fyrsta sinn á íslensku annar hluti hins heimsfræga verks Vilhelms Moberg sem gert var ódauðlegt í eftirminnilegum sjónvarpsþáttum. Í fyrra var þýðing Jóns Helgasonar á Vesturförunum endurútgefin hjá Sölku en nú eru það Landnemarnir í nýrri þýðingu Magnúsar Ásmundssonar. Meira
2.990 kr.
 

Landnemarnir - kilja

Vilhelm Moberg

Hér birtist í fyrsta sinn á íslensku annar hluti hins heimsfræga verks Vilhelms Moberg sem gert var ódauðlegt í eftirminnilegum sjónvarpsþáttum. Í fyrra var þýðing Jóns Helgasonar á Vesturförunum endurútgefin hjá Sölku en nú eru það Landnemarnir í nýrri þýðingu Magnúsar Ásmundssonar. Meira
1.990 kr.

Laufskálafuglinn

Höfundur: Margrét Lóa Jónsdóttir. 

Ína Karen stendur á krossgötum og kannar nýja stigu í fleiri en einum skilningi. Hún yfirgefur mann sinn og barn og á ferðalagi um Spán kynnist hún ástinni með óvæntum hætti. Í brennandi sólinni skrásetur hún hugleiðingar og atburði og reynir að nálgast sjálfa sig og ástvini sína upp á nýtt.

Meira
750 kr.

Leyndarmál Lorelei

Höfundur: Carolyn Parkhurst

Þýðandi: Anna M. Sigurðardóttir

Hvað gerir maður sem missir eiginkonu sína eftir kjánalegt fall úr eplatré? Eina vitnið að þessum harmleik er Lorelei, en hún er ekki til viðræðu um það sem gerðist, enda hundur. - Og hvað er þá til ráða?

Meira
990 kr.

Litbrigðamygla

Kristian Guttesen

Ljóðmælandinn dvelur á draugasetri þar sem draumar og veruleiki verða eitt. Þar sem dauðir ríkja og enginn tími líður. Hér er á ferðinni sjötta ljóðabók höfundar en hann hefur getið sér orð fyrir persónulegan stíl.

Meira
690 kr.

Litla skólahúsið

Jim Heynen er vinsæll bandarískur smásagnahöfundur og hér birtast nokkrar velvaldar smásögur úr hans smiðju. Gyrðir Elíasson valdi sögurnar og íslenskaði. Meira
490 kr.
 

Lopaljóð í sauðalitunum

Unnur Sólrún Bragadóttir

Hér er um að ræða leikandi létt sléttubönd í sauðalitunum og framúrskarandi lopaljóð skreytt fallegum ljósmyndum eftir höfundinn.

Meira
790 kr.

Manstu mig?

Sophie Kinsella

Íslensk þýðing: Aldís Björnsdóttir

Bók eftir Sophie Kinsella, höfund metsölubókanna um kaupalkann síglaða. Sagan um Lexí og hennar litríku fjölskyldu, vini - og ástmenn er ógleymanlega fyndin ástar- og harmsaga sem engin alvöru skvísa má missa af.

Meira
1.490 kr.

Með stein í skónum

Ari Kr. Sæmundsen

Með stein í skónum er smásagnasafn eftir dr. Ara Kr. Sæmundsen, framkvæmdastjóra. Um er að ræða 13 stórsniðugar smásögur sem segja m.a. af misheppnuðu bankaráni, hremmingum sumarbústaðareiganda við girðingarvinnu og dreng sem þráir að fá bjúga í jólamatinn af því honum finnast rjúpur vondar.

Meira
990 kr.

Mitt eigið harmagedón

Einstök saga þar sem tveir ólíkir heimar takast á. Dagbjört er alin upp í samfélagi votta Jehóva en þetta sumar kynnist hún heillandi valkostum sem vekja spurningar um þá trú og lífsstíl sem hún hefur treyst á.
Meira
2.490 kr.

Mótmæli með þátttöku

Kristian Guttesen

Hér fara saman skörp myndskeið og hugrenningar sem gefa lesendum aðra sýn á veruleikann.

Meira
490 kr.
 

Nóttin og alveran

Pjetur Hafstein Lárusson

Myndskreyting: Einar Hákonarson. 

Nóttin og alveran er safn 11 smásagna. Þær eiga það allar sameiginlegt að fjalla um einsemd mannsins - sem á það til að leita svo sterkt á sálina að hann kýs að sitja hjá og virða fyrir sér sjónarspil heimsins.

Meira
750 kr.

Nýtt land - innbundin

Vilhelm Moberg

Þetta er þriðji og næst síðasti hluti hins heimsfræga verks Vilhelms Moberg. Magnús Ásmundsson íslenskaði. Meira
3.490 kr.

Nýtt land - kilja

Vilhelm Moberg

Þetta er þriðji og næst síðasti hluti hins heimsfræga verks Vilhelms Moberg. Magnús Ásmundsson íslenskaði. Meira
2.150 kr.

Nýtt land - kilja

Vilhelm Moberg

Þetta er þriðji og næst síðasti hluti hins heimsfræga verks Vilhelms Moberg. Magnús Ásmundsson íslenskaði. Meira
2.150 kr.

Orðayndi

Kristján Hreinsson

Á tímum þrenginga blómstrar ástin. Fólk virðist frekar finna hjá sér þörf fyrir að deila hugsunum og tilfinningum með ástvinum. Bókinni fylgir umslag, en hún í mjóu kiljubroti og því tilvalin til að senda ástrík orð í pósti.

Meira
990 kr.
 

Ómynd - innbundin

Eyrún Ýr Tryggvadóttir

Kaldan föstudag í desemberbyrjun hverfur barn á fyrsta ári úr vagni sínum á Akureyri. Íbúar eru harmi slegnir og lögreglan ráðþrota. Ómynd er sjálfstætt framhald sögunnar um Andreu, sem kom fyrst fyrir augu lesenda í bókinni Hvar er systir mín og í kjölfarið í Fimmta barninu. Meira
2.490 kr.

Ómynd - kilja

Eyrún Ýr Tryggvadóttir

Kaldan föstudag í desemberbyrjun hverfur barn á fyrsta ári úr vagni sínum á Akureyri. Íbúar eru harmi slegnir og lögreglan ráðþrota. Ómynd er sjálfstætt framhald sögunnar um Andreu, sem kom fyrst fyrir augu lesenda í bókinni Hvar er systir mín og í kjölfarið í Fimmta barninu. Meira
1.990 kr.

Parísarkonan - innbundin

Metsölubókin Parísarkonan er söguleg skáldsaga um fyrsta hjónaband Ernests Hemingway. Ást og svik í tryggðum og sagan er enn áhrifameiri vegna þess að löngu síðar skrifaði Hemingway að hann vildi óska að hann hefði dáið áður en hann varð ástfanginn af nokkurri annarri en Hadley. Meira
2.790 kr.

Parísarkonan - kilja

Metsölubókin Parísarkonan er söguleg skáldsaga um fyrsta hjónaband Ernests Hemingway. Ást og svik í tryggðum og sagan er enn áhrifameiri vegna þess að löngu síðar skrifaði Hemingway að hann vildi óska að hann hefði dáið áður en hann varð ástfanginn af nokkurri annarri en Hadley. Meira
2.290 kr.

Passíusálmar

Einstaklega falleg útgáfa af þessu klassíska meistaraverki Hallgríms Péturssonar. Hönnun bókar og kápu var í höndum Halldórs Þorsteinssonar. Prentsmiðjan Oddi annaðist umbrot. Meira
2.990 kr.
 

Sautjándinn

Lóa Pind Aldísardóttir

Ylfa er metnaðargjarn lögmaður og hamingjusöm kona. Hún skreppur í gæsaferð með vinkonum sínum og sogast inn í atburðarás sem umturnar lífi hennar. Vinkonurnar lenda í ótrúlegum ævintýrum og kynnast hver annarri á nýjan hátt.

Meira
999 kr.

Sálmurinn um glimmer

Auður A. Ólafsdóttir

Auður hefur sent frá sér sína fyrstu ljóðabók sem nefnist Sálmurinn um glimmer.

Um er að ræða 57 blaðsíðna söguljóð þar sem tekist er á við ástríður, þjáningu, dauða, endurfæðingu, tungumálið eða skáldskapinn og fegurðina sem „bjargar heiminum á endanum“.

Auður Ava vinnur að leikriti og nýrri skáldsögu. Meira
790 kr.

Staðir

Guðrún Hannesdóttir


Guðrún Hannesdóttir er kunn fyrir barnabækur sínar og myndskreytingar. Árið 2007 hlaut hún Ljóðstaf Jóns úr Vör og sama ár sendi hún frá sér Fléttur, sína fyrstu ljóðabók sem hlaut glæsilega dóma. Þessi ljóðabók gefur henni ekki eftir. Meira
1.290 kr.

Svo mjúkt er grasið

Í bókinni birtist úrval vísna og ljóða Ásu Ketilsdóttur, sem endurspegla næmt auga fyrir náttúru og mannlífi og tilfinningu fyrir íslenskri kveðskaparlist. Meira
1.990 kr.

Systrarím

Systkinin frá Nesi í Aðaldal köstuðu gjarnan á milli sín vísum, ortu gamanbragi og einnig alvarlegri ljóð. Einn veturinn skemmtu Jóhanna og Kristbjörg sér við að bregða upp ævintýralegum myndum frá mismunandi árstíðum og kölluðu vísnabálkinn Systur sjá og heyra.
Meira
999 kr.
 

Systrarím

Systkinin frá Nesi í Aðaldal köstuðu gjarnan á milli sín vísum, ortu gamanbragi og einnig alvarlegri ljóð. Einn veturinn skemmtu Jóhanna og Kristbjörg sér við að bregða upp ævintýralegum myndum frá mismunandi árstíðum og kölluðu vísnabálkinn Systur sjá og heyra.
Meira
999 kr.

Teikn

Ljóðabók eftir Guðrúnu Hannesdóttur. Tilfinningin í ljóðum Guðrúnar er ávallt skörp, stundum alvöruþrungin en þó oftar kímin og hefur hún hlotið frábæra dóma gagnrýnenda. Meira
1.990 kr.

Til baka

Bókin er titluð sannsöguleg skáldsaga. Hér segir Helgi Guðmundsson frá hörmulegri reynslu hans sjálfs, en fléttar inn í hana efni og persónum sem eru hreinn skáldskapur. Sjúkrasaga Helga verður þannig allt í senn - beiskjulaus, lifandi og spennandi. Meira
1.290 kr.

Tímasetningar

Höfundur: Margrét Lóa Jónsdóttir

Margrét Lóa hefur skipað sér sess meðal bestu skálda okkar með ágengum stíl og einlægni. Hún er löngu þekkt fyrir ljóðabækur og sendi frá sér sína fyrstu skáldsögu árið 2004, Laufskálafuglinn.

Meira
990 kr.

Vatnsmelónusykur

Höfundur: Richard Brautigan

Þýðandi: Gyrðir Elíasson

Vatnsmelónusykur er saga um ást og svik í undarlegum heimi þar sem húsin eru gerð úr steinum og vatnsmelónusykri og sólin skín í ólíkum litum sérhvern dag.

Meira
490 kr.
 

Vesturfararnir

Vilhelm Moberg

Hér er endurútgefinn fyrsti hluti hins heimfræga og áhrifamikla verks Vilhelms Moberg um fjölskylduna sem flutti frá Smálöndum í Svíþjóð vestur um haf og hóf nýtt líf í Ameríku um miðja 19. öld. Ógleymanlegt verk öllum sem sáu sjónvarpsþættina vinsælu.

Meira
2.990 kr.

Vesturfararnir - kilja

Vilhelm Moberg

Hér er endurútgefinn fyrsti hluti hins heimfræga og áhrifamikla verks Vilhelms Moberg um fjölskylduna sem flutti frá Smálöndum í Svíþjóð vestur um haf og hóf nýtt líf í Ameríku um miðja 19. öld. Ógleymanlegt verk öllum sem sáu sjónvarpsþættina vinsælu.

Meira
1.990 kr.

Það sem aldrei gerist

Anne Holt

Það sem aldrei gerist eftir Anne Holt er sjálfstætt framhald af Það sem mér ber en sú saga sló rækilega í gegn þegar hún kom út og sat lengi á metsölulistum jafnt hér á landi sem og erlendis. Meira
1.990 kr.

Það sem mér ber

Anne Holt

Ótrúlega spennandi, óhugnanleg og einstaklega grípandi saga.” (Anne Shäffer, Bergens Tidende) „Glæpsamlega vel skrifað.” (Christopher Hals Gylseth, Dagbladet) „Það sem mér ber er án vafa besta glæpasaga Anne Holt.” (Tone Solberg, Dagens Næringsliv) Meira
1.990 kr.

Þóra - baráttusaga

Höfundur: Ragnheiður Jónsdóttir

Hér eru fyrstu tvær Þórubækur Ragnheiðar Jónsdóttur, Ég á gull að gjalda og Aðgát skal höfð, saman í einni bók en bókaflokkurinn samanstendur af fjórum bókum. Fjallað er um sígild og sammannleg málefni í afar grípandi sögu þar sem hin rómaða frásagnagáfa höfundarins er upp á sitt besta. Verkið er talið einstök perla og brautryðjendaverk meðal kvennabókmennta.

Meira
1.490 kr.
 

Þóra - baráttusaga II

Höfundur: Ragnheiður Jónsdóttir

Hér eru tvær síðari Þórubækur Ragnheiðar Jónsdóttur, Sárt brenna gómarnir og Enn spretta laukar, saman í einni bók. Bókaflokkurinn um Þóru er áhrifamikill og grípandi þar sem hin rómaða frásagnargáfa höfundarins er upp á sitt besta. Verkið er skrifað af einstöku mannlegu innsæi og er talið einstök perla og brautryðjendaverk meðal kvennabókmennta.

Meira
1.490 kr.

Þriðja bónin

Ingibjörg Hjartardóttir

Sögukona er skáld og sjúkraliði sem tengist manni órjúfanlegum böndum á dánarbeði hans. Hann segir henni ótrúlega sögu sem hún ber ábyrgð á að koma til réttra aðila – og á réttan hátt. En hve mikil áhrif hefur fortíðin á nútíðina og hvenær má satt kyrrt liggja?

Meira
990 kr.

Aukaflokkar



Þetta vefsvæði byggir á Eplica