forlag með sál
Manstu mig?

Manstu mig?

Sophie Kinsella

Íslensk þýðing: Aldís Björnsdóttir

Bók eftir Sophie Kinsella, höfund metsölubókanna um kaupalkann síglaða. Sagan um Lexí og hennar litríku fjölskyldu, vini - og ástmenn er ógleymanlega fyndin ástar- og harmsaga sem engin alvöru skvísa má missa af.

Kilja

Þegar Lexí vaknar eftir næturdjamm er hún ekki stödd í litlu London-íbúðinni sinni heldur á ríkmannlegu sjúkrahúsi. Þar liggur hún lurkum lamin og kemst smám saman að því að það er ekki árið 2004, hún er ekki lengur 25 ára, hún er ekki lengur með skakkar tennur og Dave drusla, hennar mislukkaði kærasti, er á bak og burt! Þrjú heil ár hafa þurrkast úr minni hennar og á þeim tíma hefur lífið heldur betur tekið stakkaskiptum: Árið er 2007, Lexí er orðin fullkomin tískudrós og auk þess yfirmaður í gömlu vinnunni sinni. Fjallmyndarlegur milljónamæringur er kominn til sögunnar og orðinn eiginmaður hennar! Hvernig gat þetta gerst og þvílík spæling að muna ekki efitr neinu af þessu!

Verð 2.990 kr. Netverð 999 kr.

Aukaflokkar



Þetta vefsvæði byggir á Eplica